fart wrote:
Frábært framtak (eða þannig).
Besta lausnin á óstjórn er algert stjórnleysi, lifi einstaklingsframtakið, fuck the rest.
Það er nú samt magnað ef að fólk á bara að taka því þegjandi og hljóðalaust að allt fór hér
til fjandans og það á að borga allt klabbið!
Bankarnir tóku bara CTRL-ALT-DEL á sínar skuldir við erlenda aðila og halda svo áfram
og ætla að rukka samt öll gömlu útlán bankanna 100%. Kennitöluflakkararnir sjálfir!!!
Svo fá bankamenn afléttingu á sínum ábyrgðum eins og ekkert sé.
Það er ofboðslega lítið réttlæti í því að það eigi að ganga á fólk með 100% hörku akkurat núna
af sömu aðilum og komu hér öllu í kaldakol.
Þessi ákveðni aðili er reyndar ekki með flekklausan feril en ég er samt feginn að hann
gerði þetta. Hvaða úrræði á fólk annars á móti bankakerfinu? Kerfinu sem beinlínis
tróð lánum að fólki og riggaði greiðslumöt til að koma þeim í gegn!!!
Ábyrgðin getur ekki lent öll á skuldaranum - lánveitandinn verður líka að taka hluta
af skellinum. Kannski þarf svona borgarlega óhlýðni til að koma þessari umræðu
almennilega af stað.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...