JonFreyr wrote:
Maðurinn fær klapp á bakið frá mér, sá viðtalið við hann og hann svarar heiðarlega og er poll-rólegur. Hann útskýrir pælinguna á bakvið eyðileggingu hússins og atburðarásina fram til dagsins í dag. Maðurinn er gjaldþrota, bankinn á húsið sem er örugglega tryggt sem þýðir einfaldlega að tryggingafélagið gerir kröfu á manninn því að hann, augljóslega, játar sig sekan um að eyðileggja húsið. Maðurinn er klárlega ekki borgunarmaður þar sem að hann var gerður gjaldþrota af bankanum. Fjölskyldan er flutt erlendis til að vinna, hann stendur einn eftir þarna með bankann á bakinu og sér fram á að verða hent út úr húsi sem hann byggði sjálfur.
Þetta er klárlega ekki eina dæmið um hversu illa sumt fólk lendir í því, harðvinnandi fólk sem vill ekkert nema hið besta fyrir sig og sína. Auðvitað hefur þetta fólk farið að ráðum bankanna og tekið myntkörfulán og eflaust lánað allt of mikið, eftir stendur hús sem enginn vill kaupa og lán sem hefur bara hækkað síðasta árið. Þetta er að gerast vegna þess að þeir sem báru ábyrgð á bankakerfinu brugðust, reglur voru brotnar og græðgin stjórnaði hversdeginum. Spilling og peningafyllerí af verstu sort !
Húrra fyrir Birni Mikaelssyni, þú átt hjá mér ískaldan Thule.
Leiðinlega miklar líkur á að hann njóti Thulesins ekki í jailinu...