Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby Viggóhelgi » Thu 04. Jun 2009 10:50

www.mbl.is
Eiganda bíls kastað út og bílnum rænt
Senda frétt Senda frétt
Image

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk á þriðja tímanum í nótt tilkynningu um að bíl hefði verið rænt á Kársnesbraut í Kópavogi. Samkvæmt tilkynningunni höfðu menn tekið eiganda bílsins með valdi út úr bílnum og ekið á brott.

Um er að ræða svartan BMW 325, árgerð 1994. Lögreglan segir ekki ljóst hvort bíleigandinn þekkti mennina, sem rændu bílnum en málið verði rannsakað í dag.

Þá var bláum Skoda Fabia bíl stolið af bílastæði við Dalsmára í Kópavog undir miðnætti í gærkvöldi. Hafði þjófurinn fyrst brotist inn í búningsklefa í íþróttahúsinu Fífunni og stolið þaðan lyklum að bílnum.



einhver af spjallinu ?
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby gardara » Thu 04. Jun 2009 10:52

:lol: :lol:

Image
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby Viggóhelgi » Thu 04. Jun 2009 10:59

Grand theft auto
Reykjavík City
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby SteiniDJ » Thu 04. Jun 2009 11:51

Veit ekki með ykkur, en ég læsi alltaf bílnum mínum þegar ég er á ferðinni.. Það hefur borgað sig hingað til.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby íbbi_ » Thu 04. Jun 2009 12:00

einnig var sama fíflið og barði aldraðan úrsmið um daginn tekinn fyrir innbrot þar sem hann braust inn og réðst á heimilisfólkið..

félagi minn kom að einum að rífa gps-tækið úr bílnum sínum..

það væri ekki að ósekju að taka upp gálga hengingar á torginu old school style
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby SteiniDJ » Thu 04. Jun 2009 12:54

The shocking truth!

Svo þeir voru bara að 'sækja' bílinn sinn? Mjög gruggugt mál..
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby Grétar G. » Thu 04. Jun 2009 13:23

Það er nú eitthvað mikið þarna á bakvið held ég...
E30 M20B25 TÚRBÓ
E36 ///M3 Daytona Violet
E65 735i LOADED
Range Rover Sport Supercharged
Yamaha YZF R6 '07
E39 ///M5 & Evo V & E60 545i & 300C SRT-8 (Seldir)
User avatar
Grétar G.
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2287
Joined: Tue 13. May 2008 01:10
Location: Ghettó BRH

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby Kristjan » Thu 04. Jun 2009 13:52

Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby SteiniDJ » Thu 04. Jun 2009 13:55

Kristjan wrote:Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable.


Sammála, þó að þetta hafi verið svolítið á gráu svæði.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby xripton » Thu 04. Jun 2009 14:38

Tók lögin í eigin hendur

Tekið af mbl.is
„Þeir snertu ekki strákinn," segir tvítugur karlmaður, sem lét vini sína endurheimta bifreið sem 16 ára piltur hafði keypt af honum. Eigandi bílsins segist ítrekað hafa reynt að láta kaupin ganga til baka eftir að í ljós kom að kaupandinn hafi hvorki haft aldur til að eiga slíkan bíl né aka honum.

Fram kom á mbl.is í morgun að kært hafi verið til lögreglu að BMW-bíl hafi verið stolið í Kópavogi í nótt, eigandanum hent út úr bílnum og bíllinn síðan tekinn traustataki. Sagði lögregla að málið yrði rannsakað sem bílrán.

Maður, sem segist vera skráður eigandi bílsins, segir aðra sögu af málsatvikum. Hann sagðist hafa uppgötvað að pilturinn hafði ekki aldur til að eiga bíl þegar hann ætlaði að skrá eigendaskiptin fyrir nokkrum mánuðum. Ekki tókst honum að hafa upp kaupandanum í kjölfarið og segir að þegar rukkanir fóru að berast fyrir hinum ýmsu gjöldum og sektum, sem hlóðust upp á bílinn í hans nafni, hafi vinir hans boðist til að mæla sér mót við handhafa bílsins og endurheimta hann.

„Hefur ekki upp á sig að tala við lögregluna"

En datt þeim ekki í hug að láta lögregluna annast málið? „Ég hef talað við lögregluna í svona máli og þeir gera ekki neitt ef maður tilkynnir bíl stolinn. Það var stolið bíl af félaga mínum og hann er ekki fundinn enn. Ég vissi að það myndi ekki hafa neitt upp á sig," sagði bíleigandinn, sem vildi ekki að nafn hans kæmi fram.

Óttast hann ekki að drengurinn reyni sömu aðferð við að ná bílnum aftur? „Nei, bíllinn er á góðum stað, hann finnur hann ekki," sagði maðurinn og bætti við, að hann hygðist selja bílinn aftur ef hann fengi ekki þessar skuldir borgaðar.

„Svona gera menn ekki"
Málið er rannsakað sem rán hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum með 17 ára dreng og föður hans hér í yfirheyrslu vegna þessa máls," sagði Gylfi Sigurðsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 3 á höfuðborgarsvæðinu.

Var ólögmætt að endurheimta bílinn með þessum hætti? „Já, það eru einhverjar deilur þarna í gangi og ljóst er að svona gera menn ekki, það má ekki hirða af fólki það sem þeir hafa selt," sagði Gylfi.


Persónulega finnst mér þetta rétt ef hann er ekki búin að skipta um eigenda og er að fá á sig sektir ofl
BMW e46 325i Seldur
xripton
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Fri 31. Aug 2007 13:16
Location: Reykjavík

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby Vargur » Thu 04. Jun 2009 23:33

Kristjan wrote:Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable.


Það er nú vanalegt að seljandinn sjái um eigendaskiptinn enda er það hans hagur að þau fari sem fyrst í gegn.
Gaurinn hefur varla geta látið einhverjar sektir falla viljandi á fyrri eiganda, það geta bara verið stöðumælasektir og myndavélasektir og þær fara náttúrulega á skráðann eiganda og hans er feillinn að hafa ekki græjað eigendaskiptin.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby ///M » Fri 05. Jun 2009 00:07

Vargur wrote:
Kristjan wrote:Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable.


Það er nú vanalegt að seljandinn sjái um eigendaskiptinn enda er það hans hagur að þau fari sem fyrst í gegn.
Gaurinn hefur varla geta látið einhverjar sektir falla viljandi á fyrri eiganda, það geta bara verið stöðumælasektir og myndavélasektir og þær fara náttúrulega á skráðann eiganda og hans er feillinn að hafa ekki græjað eigendaskiptin.


Hann segist hafa reynt að gera eigandaskipti en það ekki gengið þar sem kaupandi hafði ekki aldur. Og eftir það hafi hann ekki getað náð í "kaupandann"... :)
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby DABBI SIG » Fri 05. Jun 2009 00:19

///M wrote:
Hann segist hafa reynt að gera eigandaskipti en það ekki gengið þar sem kaupandi hafði ekki aldur. Og eftir það hafi hann ekki getað náð í "kaupandann"... :)


En hvað... náði hann síðan mjög auðveldlega í "kaupandann" þegar hann ætlaði að endurheimta bílinn?
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
Image
User avatar
DABBI SIG
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 377
Joined: Fri 27. Apr 2007 00:51
Location: tja...einhversstaðar að leika mér:D

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby ///M » Fri 05. Jun 2009 00:30

DABBI SIG wrote:
///M wrote:
Hann segist hafa reynt að gera eigandaskipti en það ekki gengið þar sem kaupandi hafði ekki aldur. Og eftir það hafi hann ekki getað náð í "kaupandann"... :)


En hvað... náði hann síðan mjög auðveldlega í "kaupandann" þegar hann ætlaði að endurheimta bílinn?


Það stendur ekkert um það í fréttinni
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans.

Postby gulli » Fri 05. Jun 2009 00:47

Það er ábyggilega eitthvað meira þarna á bakvið sem kemur ekki framm varðandi þessi kaup...
EN >>> ef það veit einhver hver þessi eigandi er, þá er alveg spurning að pósta því... gæti verið áhugaverðurbíll!!!!!
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 33 guests