Bæði myndböndin eru hrikalega flott og vel klippt saman, fyrra myndbandið var þó af allt öðrum caliber því að það var "nýtt" og hrárra en seinna myndbandið. Part ll er miklu meira "Herbert Guðmundsson" en Part l því að núna er búið að splæsa fleiri myndavélum og haug af slómó-skotum. Þó verð ég að segja að ég hækkaði í botn og opnaði þetta í Full-Screen því að innst inni mér nýji STi ansi flottur með léttum breytingum. Svo þarf ekkert að ræða það að 566WHP og 611fótpund í strípuðum STi er rosalegt