OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby bebecar » Thu 28. May 2009 08:33

einarsss wrote:átti Mazda 5 fyrir ca 2 árum sem var fínn í fjölskylduna og tók 6 farþega+ökumann og nokkuð þægilegt tæki. Kom með 2L 4cyl vél sem skilaði 160hp, rennihurðar og fínt pláss í skottinu þó öftustu sætin hafi verið sett upp. Fínt nota gildi en lítil akstursánægja


Mazdan er solid upp á rekstrarkostnað að gera líka - góð umboð á norðurlöndunum ef það skiptir máli fyrir Kristján.

Ef þig vantar eitthvað ódýrt og aukasæti sem eru bara notuð annað slagið þá voru W124 benzarnir í T úgáfunni til með auka sætum aftast sem og margir Volvo bílarnir t.d. í 900 seríunni. Kostar lítið og er solid.

Vito-inn getur samt verið nokkuð töff og tekur sig örugglega vel út úti á hraðbraut...
Image

Það má svo alltaf skella sér á VW Camper ef þú ert ekki að flýta þér: :lol:
Image
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby fart » Thu 28. May 2009 08:56

Ford S-Max heillaði mig dálítið fyrst, en mér fannst hann bara ekki nógu fjölhæfur, eiginlega of lítill.

Vandamálið við marga af þessum bílum er að... miðjubekkurinn er ekki nógu stór til að taka tvo barnastóla + einn farþega í viðbót (nema hann sé krakki) og fáir af þessum bílum taka 3 barnastóla yfir miðjubekkinn. Aukasætin í skottinu eru sjaldnast það stór að þau taki fullorðin nema í stuttar ferðir eða þá barnastóla sem þurfa ISOFIX ef þau rúma barnastóla á annað borð.

Tökum dæmi um fjölskyldu sem á tvö börn á stólaaldri og eitt á unglings. Þá þarf að setja unglinginn í skottið sem gæti vel gengið, en til þess að komast í skottsæti þarf yfirleitt að velta fram einu miðjusæti og þá kemur leiðindar vandamál sem er að það þarf alltaf að leysa barnastólinn úr miðjubekknum til að velta sætinu fram. Fyrir mig yrði þetta gersamlega óþolandi.

Í mörgum þessara bíla er ekki gert ráð fyrir að geta sett farþega inn um skottið nema þeir séu það litlir að það sé hægt að lyfta þeim yfir sætisbökin á aftasta bekknum, eða þá leggja niður annað sætið. Hvað gerir maður þá ef maður er með fullan bíl?

Það eru mörg svona praktísk atriði sem fólki yfirsést, þ.e. ef fjölskyldustærðin er t.d. 3 ung börn. Ef maður ætlar að nýta öryggisbúnaðinn, og hafa skott, eru mjög fáir bílar á markaðnum sem eru með 3x ISOFIX í miðjuröðinni, og þá þarf að setja einn grísinn í skottið sem tekur þá skottpláss, án þess að það sé hægt að taka sæti úr bílnum í miðjuröðinni til að koma dóti.

Í Espace er þetta ekki vandamál.
1. Miðjuröðin eru 3 full size sæti öll með Isofix

2. Viðbótarsætin (sem maður bætir í eftir þörfum) eru líka Isofix og nákvæmlega eins og sætin í miðjuröðinni. S.s. það eru 5 eins sæti í farþegarýminu og öll ISOFIX. Það þýðir að það komast í raun 5 barnastólar af stærstu gerð í farþegarýmið.

3. Ef það eru tveir barnastólar í miðjuröðinni þarf fullorðinn ekki að troða sér á milli heldur getur setið á öðrum hvorum endanum. Þetta er ekki hægt í mörgum bílum, jafnvel ekki Jeppum (t.d. X5). Auk þess, eins þá er hægt að strappa öll börnin í stólana í miðröðinni og svo getur skottfarþeginn farið inn um skottið mjög auðveldlega.

4. tökum mitt dæmi. Við erum 2 fullorðin, 3 krakkar (6mán, 2.5ára, 7ára) öll í stólum og svo 20ára aupair. Ef við förum í ferðalag á Espace er hægt að hafa 3 í miðjuröðinni og einn afturí og taka þá hitt aukasætið úr sem býr til verulegt skottpláss. Það er líka hægt að snúa sætunum á móti hvort öðru 2 á móti tveimur með eitt sætið sem borð ef fólk vill spila eða éta, nú eða ef það þarf að sinna krökkunum eitthvað þá getur barnapían gert það auðveldlega.

5. þegar ég keypti slátturvélina mína (traktorinn) tók ég öll sætin úr og þá er bíllinn algjör geymur. Einnig ef það á að flytja langa hluti getur maður tekið miðjusætið úr miðröðinni og sett það aftur í skott og flutt mjög langa hluti.

Þetta er alveg endalaus snilld. Það er vel hægt að fá ódýrari týpur af Espace en þann sem ég er með, og ég hugsa að ég myndi alltaf fara í ódýrari stuttan Espace en t.d. Touran, Safira, Scenic, því að þægindin varðandi umgengni eru svo miklu meiri í stærðinni sem Espace hefur án þess að vera eitthvað of stór fyrir borgarakstur og bílastæðahús. Þvert á móti er hann virkilega lipur.

Image

Image

Image

Varðandi SendiBenzana þá er galli á gjöf njarðar þar að þeir eru ekki hannaðir sem fjölskyldubílar, heldur sendi/fólksflutningabifreiðar og eru því frekar bulky. Auk þess eru sæti ekki sérsæti heldur tveir "bekkir með sætum" sem þýðir að það er ekki einfalt að leggja niður aftasta bekkinn eða raða í bílinn eins og hjá mér. Örugglega/líklega bestu akstursbílarnir samt og endast vel.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 09:28

Ég er að leita að bíl fyrir tengdamömmu til að transporta 2 börnum og 4 fullorðnum. hefði átt að taka það fram strax... gott væri að geta tekið mikinn farangur og helst einn barnavagn.


Bíllinn verður mestmegnis notaður í Svíþjóð og svo ekinn eitthvað niður til evrópu með 2 fullorðna og 1 barn + lítinn húsvagn í eftirdragi.

Þau eiga Renault Megané Scénic núna sem þau elska en hann er að verða of lítill. Því væri II kannski ágætur kostur.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby gardara » Thu 28. May 2009 09:50

Dodge Grand Caravan!
Gífurlegt pláss í þeim bíl og captain stólar, bara þægilegt!
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby fart » Thu 28. May 2009 11:11

Kristjan wrote:Ég er að leita að bíl fyrir tengdamömmu til að transporta 2 börnum og 4 fullorðnum. hefði átt að taka það fram strax... gott væri að geta tekið mikinn farangur og helst einn barnavagn.


Bíllinn verður mestmegnis notaður í Svíþjóð og svo ekinn eitthvað niður til evrópu með 2 fullorðna og 1 barn + lítinn húsvagn í eftirdragi.

Þau eiga Renault Megané Scénic núna sem þau elska en hann er að verða of lítill. Því væri II kannski ágætur kostur.


Aldur og stærð skipta þarna máli. Þú getur alltaf sett tengdamömmubox á toppinn, þó ekki til að geyma tengdamömmu í.
hvað eru börnin gömul? eru þau á bílstólaaldri? Ef svo er þá getur þú ekki reiknað með að setja fullorðinn á milli þeirra í venjulegum 7 manna bílum, þá þarftu að setja tvo fullorðna á aftasta bekk, sem getur verið glatað í löngum ferðalögum ef þessir fullorðnu eru ekki tiltölulega smábyggðir, auk þess ertu þá búinn að fórna öllu skottinu í "normal" 7seater.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby bebecar » Thu 28. May 2009 11:21

Sveinn var búin að pæla í þessu út í eitt man ég eftir - en það sem vantar er kannski að vita hvað þetta má kosta :idea:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 11:27

1 árs og 7 ára

sú gamla var eitthvað að tala um 30k sænskar og bíl ekinn undir 200k en ég ætla að telja henni trú um að kaupa 1-3 ára bíl og slatta minna ekinn, og náttúrulega töluvert meiri pening.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby fart » Thu 28. May 2009 11:28

bebecar wrote:Sveinn var búin að pæla í þessu út í eitt man ég eftir - en það sem vantar er kannski að vita hvað þetta má kosta :idea:


Hehe.. frekar fyndið að vera svona áhugasamur um svona óspennandi hluti, en ég er stoltur fjölskyldumaður sem vill bara það hentugasta fyrir utan það LANG öruggasta.

En já €€€€€ skiptir máli
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 11:29

þau eiga tengdóbox btw... geyma það á alveg stórfurðulegan hátt... það er geymt með því að tjakka það upp í loft, needless to say þá er ég alltaf skíthræddur við að labba inn í það herbergi, maður veit aldrei hvenær það hrinur niður í hausinn á manni
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby fart » Thu 28. May 2009 11:37

Þetta er verulega tight budget... Ég myndi ekki vilja fara í langferð með fullan bíl af fólki og farangri og tjaldvagn í eftirdragi að auki á einhverju sem er komið vel til ára sinna.

Öryggi fyrir farþega og ekki eitthvað sem er að fara að bræða úr sér á einhverri hraðbrautinni.... fyrir mig takk.

Það er voðalega lítil ferðalagarómantík í því að vera bilaður úti í kanti með 1+7ára.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Geirinn » Thu 28. May 2009 11:59

Ég einhvernveginn myndi fara alla leið ef ég færi í svona bíl... maður fer ekki í svona bíl af ástæðulausu.

Auðvitað spila peningar inn í þetta en ég myndi allavega gert allt hvað ég gæti til að versla bifreið sem öllum líður vel í.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby Kristjan » Thu 28. May 2009 12:07

fart wrote:Þetta er verulega tight budget... Ég myndi ekki vilja fara í langferð með fullan bíl af fólki og farangri og tjaldvagn í eftirdragi að auki á einhverju sem er komið vel til ára sinna.

Öryggi fyrir farþega og ekki eitthvað sem er að fara að bræða úr sér á einhverri hraðbrautinni.... fyrir mig takk.

Það er voðalega lítil ferðalagarómantík í því að vera bilaður úti í kanti með 1+7ára.


ég er sammála þessu í einu og öllu, því segi ég að ég ætla að reyna að sannfæra hana um að fara í eitthvað nýrra...
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby bebecar » Thu 28. May 2009 12:32

Bíll á 30K sænskar er budget fyrir W124 og Volvo 940 í topp standi (ástæðulaust að ætla að þeir stoppi út á hraðbraut eitthvað frekar en nýr bíll).... kannski gömlum Ford Galaxy - það þarf ekkert að ræða hitt nema fimmfalda budgetið!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby fart » Thu 28. May 2009 12:39

bebecar wrote:Bíll á 30K sænskar er budget fyrir W124 og Volvo 940 í topp standi (ástæðulaust að ætla að þeir stoppi út á hraðbraut eitthvað frekar en nýr bíll).... kannski gömlum Ford Galaxy - það þarf ekkert að ræða hitt nema fimmfalda budgetið!


Svona svipað og að E30 bilar ekkert frekar en annað :lol: á langferðum. Gamlir bílar / meira keyrðir bílar, bila meira en nýrri bílar / minna keyrðir bílar og ekki láta norðurlandameistara í nostalgíu með frjálsri aðferð segja þér annað Kristján.

En myndur þú virkilega bjóða fóki uppá að sitja í skottinu á einhverjum steisjón sem var ekki hannaður sem 7seater. Menn geta ekki leyft sér að horfa framhjá örygginu

Image

Image
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: OT Sjö sæta bíll... hvað er í boði?

Postby bebecar » Thu 28. May 2009 13:56

Nýir bílar bila líka, stundum eru þeir rétt komnir út úr umboðinu þegar þeir eru stopp... :wink: það getur náttúrulega alveg eins gerst út á hraðbraut eða annarsstaðar.

En öryggið, jú það skiptir náttúrulega öllu máli í svona bílum en fyrir 30K þá er ekki hægt að hafa stórar væntingar í þá átt og líklega Benz og Volvo frá þessum tíma einmitt með því skársta miðað við þennan pening.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests