Lindemann wrote:
vertu bara í samráði við málara með þetta, og þá helst þann sem ætlar að mála bílinn.
Ef þú ert ekki búinn að ákveða hver málar bílinn þá skaltu athuga það að margir málarar vilja ekki mála bíla sem fólk útí bæ hefur unnið undir málningu
Bíllinn verður unninn af atvinnumálara, kemst að því seinna hver það er, hann er kominn á tjónaverkstæði þar sem ég ætti svo að geta unnið í honum með smá leiðsögn.
Ég á eftir að ræða við sprautarann hvernig þetta verður unnið, ég ætla mér ekki að mála neitt sjálfur heldur bara slípa og svona sem krefst ekki æfingar eins og sprautunin.
Langaði bara að finna almennilegt info um sprautun og eiginleika grunns og svo framvegis til að standa betur að vígi.
Svo fer ég bara að byrja að rífa bílinn í spað vonandi í næstu viku, efast um að ég muni nenna samt að taka mótorinn úr og vinna við skelina í heild sinni.