( SC: SuperCharger, IC: InterCooler )
Jæja, nú kom að því.
Ég er nýlega búinn að bæta við 17% minna SC hjóli sem gekk fínt. Bíllinn var góður í 2-3 vikur, þar til nú.
Ég var bara á krúsinu með félaga mínum þegar ég fór að heyra virkilega skrítið hljóð, svona eins og eitthver steinn eða eitthvað væri að nötrast utan í járn, hljóðið ágerðist með snúningshraða en heyrðist ekki í hægagangi. ( þessu hljóði var hægt að líkja við það að tannhjól væru að skralla saman ).
Ég prufaði að gefa hressilega í, og var engann kraftmun að finna, alveg jafn sprækur.
Nú okey allt í góða, við stoppum bara og opnum húddið og þá tek ég eftir að loftsían mín var farin af rörinu

, ég smelli henni aftur á og geng úr skugga um að þetta skeður ekki aftur. Svo tek ég eftir því að það vantar skrúfu á intercooler coverið hjá mér ( Top mount IC ), en man ekki hvort hún hafi verið þar áður, held að hún hafi verið þarna áður samt. Þannig ég fór að spá í hvort skrúfan hafi lent einhverstaðar undir einhverju járni og væri að gefa frá sér þessi ægilega leiðinlegu hljóð.
Einnig fór ég að velta fyrir mér hvort skrúfan hafi farið inn um intaks rörið. En SC gaf frá sér eðlilegt væl þannig ekki fór hún lengra en SC, en ég fór að velta fyrir mér hvort skrúfan væri þarna inni í rörinu að slengjast utaní SC.
Ég held svo bara einn leið minni í aðstöðuna mína og ætla að kíkja á þetta, þegar ég fer að taka eftir kraftmun... ( þó heyrist eðlilegt hljóð í SC ).
Ég er kominn á planið fyrir utan aðstöðuna þegar hljóðin verða rosalega skrítin og asnaleg og að lokum drepst á bílnum.
Ég prufa að starta aftur og þá kemur belta ískur og bíllinn helst ekki í gangi.
Ég prufa einu sinni í viðbót, og þá cranckar ekki einu sinni vélin. Heyri bara smell í relay-inu og málið dautt.
Ég fer út og prufa að íta bílnum í gír, sem er ekki séns!!
Hvað erum við að tala um í damage hér? Úrbræddur mótor eða ónýtur SC ?
Getur verið að skrúfan hafi lent inní SC og fest hann og ekki farið lengra ?
Get ég gengið úr skugga með það, með því að taka reimina af SC og prufa að cranka ?
Ég er ekki 100% á því að þessi skrúfa hafi losnað, en það þætti mér líklegast, þar sem önnur skrúfa var farin að losna einnig.