Málið er að ég er með bát sem ég get alveg sett í gang og allir að dansa, en ég get ekki
stoppað dansinn, þ.e. drepið á kvikindinu nema að kæfa hann. Þetta er mercruiser 3.0L vél.

Búinn að rekja mig í gegnum teikningar og gruna að svokallað starter solenoid sé skammhleypt, ég er búinn að prófa að aftengja efri tvo vírana og það hefur engin áhrif þegar
mótorinn er í gangi..
Ég tók einnig rafgeyminn úr sambandi þegar hann var í gangi og hann gekk..
Hvað er annars starter solenoid?
Á bls 4 í þessu sést mjög ítarleg teikning, vandamálið er að hvað er það er það sem drepur á vélinni? er það kannski stóra "solenoidið" á startaranum sem tengist háspennukeflinu?
http://www.boatfix.com/merc/Servmanl/13/13E4R2.PDF
Öll hjálp vel þegin
Þröstur


Allar almennar bílaviðgerðir 694-3035 




