sumarið hefur aldeilis kickað hressilega inn þessa dagana, og með því hefur skordýraflóran lifnað heldur betur við líka.
ég er með stóra og gróna lóð sem nær hringin í kringum húsið hjá mér, sem veldur því að ég get hvergi opnað glugga á án þess að fá býflugur og geitunga inn. og það er búið að vera 30°+ í kofanum í dag og er það bókstaflega ólíft..
einnig er ég með sólpall, sem er töluvert rými undir gólfinu á. og ég nokkuð hræddur um að þarna eigi helvs geitungarnir eftir að hreiðra um sig, ég sé umerki eftir bú á flr en einum stað á húsinu og lóðinni.
ég er eitthvað lítið hrifinn af þessum kvikindum, og vildi gjarnar geta setið í pottinum í friði fyrir þessu,
hvaða ráð eru raunverulega að virka, ég hef verið að spá í að fá meindýraeyðir til að eitra garðinn og veggi, og reyna hindra að þetta nái sér almennilega á stofn hérna,
hvaða reynslu hafa menn af þessu?




ég bý í timburhúsi með tvo palla.. s.s ekkert nema timbur