Ég braut framdrifið seinasta sumar/haust en ég er búinn að kaupa annað drif á bara eftir að koma því í.
Einnig eru að fara fóðringar í framfjöðrunarbúnað sem heitir á ensku "upper links" og hef ég einnig keypt ný,stillanleg frá driftworks.
Einnig ætla ég að setja þrengingarbanjoboltana í túrbínurnar til að minnka olíuþrýstinginn inná túrbínurnar.
Eftir að þetta er allt búið þá er planið að heilmála kvikindið.
Enda kominn tími til að maður fari að vinna í bílnum og koma honum í almennilegt stand aftur.
Hérna eru einhverjar myndir sem ég er búinn að taka síðan ég byrjaði:





það var mjög erfitt að fjarlægja þennan öxul en er búinn að því núna (þurfti að opna lokið af framdrifinu til þess)

Þessi vinstra megin var mjög auðveldur


Tók tappann úr framdrifinu til að tappa olíunni af...og þá blasti þetta við.







og svo eitthvað meira sem ég tók í kvöld.



hérna eru nokkrar myndir sem ég tók af drifinu í kvöld eftir að hafa opnað lokið.





og náði að fjarlægja hægri framöxulinn.

reyni að koma með update af þessu....









