Þessi pixlavandamál ættu allir að þekkja, og kemur engum BMW eiganda á óvart, auk þess sem útleiðsla í E38 virðist vera reglan fremur en undantekningin. Að mínu mati eru þessi tvö atriði nokkuð sem hugsanlegir kaupendur verða að átta sig á að eru mjög algeng hvað þessa tegund varðar.
Hvað varðar einn og einn ryðblett verð ég nú að segja að bíll ekinn yfir 300.000 hlýtur eðli málsins samkvæmt að hafa slíkt.
Gangi þér vel með söluna.

