Akkúrat - en já semsagt þessi herramaður var að dást að íslensku einkanúmerunum og við tókum smá spjall. Hann vildi semsagt endilega leyfa mér að finna hvernig PDK virkaði á slaufunni, en ég var búin að segja honum að ég hefði prófað marga PDK Porsce bíla upp á síðkastið og væri mjög hrifin af þessu. Hann hafði keypt bílinn bara fyrir brautarakstur, átti líka E63 eða E65 AMG, og var hann búin að keyra bílinn 12 þús frá því í haust, bara á braut!
Þetta var hörku flinkur ökumaður en varkár í framúrakstrinum. Þetta var bara plain 911 S með PDK og Sport Chrono pakkanum og hann svínvirkaði - það var áberandi að CSL bílarnir dróu á hann í beygjunum (911 bíllinn þarf að bremsa fyrr - early in early out út af vélarstaðsetningunni) en svo um leið og hann var komin í beygjuna gat hann raðað inn gírunum og hreinlega skyldi þá eftir. Mjög impressive að fara slaufu hring á bíl í svona átökum sem hvorki heyrist brak, ískur né brestur í - afar solid græja.
Hér eru svo nokkrar myndir sem ég loksins upplódaði, smá önnur áhersla en hjá hinum strákunum þar sem við erum mikið til með sömu myndirnar....
Dæmigerður dagur á slaufunni, endalaust mikið af græjum sem koma og fara allan daginn. Margir komnir til að keyra aðrir til að sýna sig og sjá aðra.

Gengið fyrir utan gamla Ford þróunarverkstæðið við slaufuna sem í dag er "visitor support" en þar er hægt að leigja aðstoð eða aðstöðu þegar eitthvað bjátar á. Í þetta skiptið var það hinn alræmdi Þórður "Reimar" sem þurfti... ehhhm.... reimar!

Við slaufuna tók ég nú aðallega myndir af einhverju sem ég fíla... Hér er einn með mikla reynslu, algjör hard core græja.

Rosalegur Mini með vél úr Hondu, 200 hestöfl, vélin í "miðjunni" og afturhjóladrif - þetta er örugglega alveg rosalegt tæki - fullt af CF í bílnum í ofanálag. Myndi giska á að þetta sé um 700 kíló...


Lotus Carlton - ótrúlega svalir bílar.

Ég tók viðtal við 75Experience en þeir leigja út Alfa 75 bíla en eru með fullt af öðru forvitnilegu dóti, eins og þennan keppnisbíl með 380 hestafla N/A vél og þessu glæsilega burðarvirki í húddinu!

Einnig lumuðu þeir á þessum sjaldgæfa bíl í bakgarðinum sem er í eigu viðskiptavinar ef ég man rétt - 2.5 Evoluzione...

Einnig fórum við á F1 hlutann og þarna glittir í afar merkilegan grip vinstra megin, all carbon fiber Calibra, einhver prótótípa

Mega kúlness og ekkert annað!

Þessi vakti upp gamlar minningar - mjög flottur og greinilega með reynslu...

Þessi mynd segir meira en þúsund orð - það var góður matur þarna á Pistenclause samt og hörku fín stemmning, Lexus liðið var á næsta borði við okkur og ljóst að allir voru að spjalla um daginn (VLN kappaksturinn)

Átján bláir hjá Sveinbirni á leiðinni á Spa

Mættir á Spa, Þórður og Sæmi enn að laga hringvöðvann eftir átök helgarinnar og því ekki komnir...

Sveinn eyddi tveimur tímum á bakinu eins og sannur atvinnumaður

Á meðan tóku menn á því í brautinni, Sveini til mikillar armæðu þar sem hann var ekki með... hann greip nokkrum sinnum til "helvítis fokkíng fokk" og hótaði að selja vélina og fara náttúrulegu leiðina (N/A). Því miður náði ég engri mynd af honum í brautinni þar sem að við fórum snemma.

Hringvöðvinn mættur en þurfti smá tékk sömuleiðis.

Klukkan að verða eitt, komin til Horsen sem var endastöð Sveinka og gula... næsta lest til Álaborgar klukkan hálf fjögur en rónarnir bentu mér á að það færi lest til Árósa klukkan tvö þannig að ég spjallaði við þá þangað til að hún kom og fór svo þangað og gist þar hjá mági mínum.
