saemi wrote:Nú er það síðasta kvöldmáltíðin. Sveinki og Ingvar farnir til DK, Gísli suðureftir og við Þórður sitjum og bíðum eftir pizzu á Pistenklause.
Bara gaman í dag, gott að ná að komast á Spa þrátt fyrir smá töf í byrjun. Þurftum að redda Mercedes Benz varahlut í Hringvöðvann til að hann gæti herpst nógu mikið. En það reddaðist rétt fyrir hádegið og það var herpst og herpst á Spa í eftirmiðdaginn.
Herra Hosuklemma .. eða Hulk var einnig á staðnum þar og blés svo hraustlega að hosuklemmurnar máttu sín lítils gegn trukkinu. Yfirleitt voru það 3 hringir og svo re-hosuklemmað.
Jæja.. pizzan komin
Svona til að taka það fram þá voru klemmurnar misgóðar, en aðal vandamálið var of stutt silicone hosa á aftari túrbínunni. Þannig er mál með vexti að rörið sem fer frá túrbínum yfir í Intercooler fer undir þverbitann á bílnum og því myndast tog á hosuna í miklum hasar. Ef hún hefði verið 5cm lengri hefði þetta verið mun betra.
Annars var þetta bara fjör, þ.e. þegar þetta hékk saman.
Ég missti bílinn í mega slide á einum stað og endaði úti í möl, þurfti að fá support bíl til að draga mig upp. Ingvar fékk smá fyrir peninginn þar.
Skv. myndbandi sem ég er að uploada núna var ég 2.50mín að keyra hringinn miðað við 2.57/8 best í fyrra. Það er heljarinar bæting og almennt er talið að sub 3.00mín fyrir götubíl sé góður tími á SPA.

