Er í vandræðum, fæ ekki skoðun vegna of hás CO. E39, 520 árg ´96 (´97 módel) ek. 191000 M52
Fyrst var CO mælt 0,49 í hægagangi og 0,47 í >2000 rpm (þarf að vera undir 0,3)
Lét lesa tölvu (Bifr. Bjarnhéðinn Ak.)og engrir kódar sjást.
Skipti samt um súrefnisskynjara þar sem mér fannst líklegt að það væri kominn tími á þá.
Skipti líka um olíu og kíkti á 2 kerti sem voru fín (ljósgrá og þurr, 15000 km síðan var skipt).
Setti spíssahreinsi í tankinn, og fer aftur
Þá mælist
0,49 og 0,85 og þar með endurskoðun aftur.
Talaði við fróða menn sem segja að líklegast sé hvarfinn að gefa sig, nýr kútur er víst álíka dýr og bíllinn

Er einhver önnur skýring? Mér eyðslan líka of mikil ca. 4 l of mikil eða um 19-20 innanbæjar, ekki skýrir hvarfinn það?
Annað: Skoðaði soggreinina, allar slöngur líta vel út og enginn sýnilegur leki. Tók samt ekkert í sundur.
í olíulokinu er mikill raki og smá gul drulla, líka talsverð gul drulla í öndunarslöngunni framan á ventlalokinu, ef ég blæs í slönguna heyrist eins og vatnsgutl einhverstaðar undir soggreininni.
Er heddpakkning að gefa sig? Hann er samt ekkert að hreyfa vatnið mikið, hef þurft að bæta á ca. 0,4l á 7 mánuðum. Reykir heldur ekki mikið.
Loftsían er nýleg ca. 7.000 km.
mér finnst hljóðið hafa breyst, meir púst hljóð.
Hvað er helst að gera. Mér finnst glatað að fara með hann á verkstæði þar sem menn fara í einhverjar happa og glappa aðgerðir þar sem enginn virðist vita hvað sé að.