bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 10:06

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 595 posts ]  Go to page Previous  1 ... 17, 18, 19, 20, 21, 22, 23 ... 40  Next
Author Message
PostPosted: Tue 28. Apr 2009 10:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Gott mál :) fékk gamalreyndan E30 snilling hjá umboðinu hérna úti til að athuga með ganginn í bílnum og hann sagði mér að athuga kertaþræði og kveikjulok. Kostar rúmlega 35000 íslenskar sem er blóðtaka....en það er smá teip á einum þræðinum sem er eflaust ekki bara til skrauts :lol: hann vildi meina að það væri lélegur neisti á einum cylinder og var alveg 100% á því að þetta væri misfire. Hljómar svosum ekki svo vitlaust, ætla að mæla mótstöðuna í þráðunum og sjá hvernig það lítur út. Veit að hann þjappar á öllum vegna þess að ég skoðaði alla ventla, skoðaði líka inn í öll brennsluhólf og hvergi sót að finna og allt mjög snyrtilegt.

Leiðinlegu fréttirnar eru hins vegar þær að felgurnar eru ekki enn komnar og núna hefur fyrirtækið sem seldi mér felgurnar ákveðið að sleppa því bara að svara pósti frá mér. Ignore him and the problem goes away. Afskaplega þreyttur hugsunarháttur sem á ekki heima í viðskiptum af neinu tagi, vona að þetta komi í dag eða á morgun svo ég geti látið hjólastilla áður en ég bruna af stað.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 29. Apr 2009 11:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
einarsss wrote:
algjör óþarfi að taka vatnskassann úr :shock: vissulega þægilegra en ég myndi ekki nenna að taka kassann úr og fylla svo á kælikerfið og blæða það.

En þetta er rétt hjá Óskari að auðvitað notaru bara sexkanntinn :lol:



Notaði sexkant en viftan kemst alls ekki úr með vatnskassa á sínum stað, viftan er laus en næ henni ekki burt. Er eiginlega eingöngu með vatn á bílnum og lagði yfir niðurfalli, kem hvort eð er engu undir bílnum því hann er ekkert sérstaklega hár. Fæ nýja þræði, kveikjulok og hamar á morgun og það dugar vonandi til að laga hægagang. Vatnið fer af bílnum seinna í dag, hendi honum á lyftu á morgun og fer með rörtöng á olíusíu ásamt því að skipta um olíu aftur vegna þess að olían er blönduð bensíni eftir misfire ævintýri vikunnar. Sé svosum ekki eftir þessum peningi en djöfull verður þetta fljótt að stórri upphæð, bara þetta kveikjuvesen nálgast 3000DKK sem er tæplega 70þús. á gengi dagsins :? hef séð komplett M20 á svipuðu verði auglýst á kraftinum :lol: síðastu 2 mánuðir eru komnir yfir 400þús. bara í parta sem er geðveila ef maður pælir aðeins í því.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 29. Apr 2009 14:08 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
tókstu ekki viftuhlífina af fyrst?

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 29. Apr 2009 14:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Jú en það er þröngt á milli vatnskassa og viftukúplingar, kem ekki viftunni út á milli.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 30. Apr 2009 21:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Felgurnar komnar undir, reyndar ekki felgurnar sem ég var búinn að skoða á síðunni. Felgurnar eru mjög líkar en vantar þetta stóra og fallega lipp sem mig langaði svo að hafa á felgunum. Búið að vera tómt vesen með þessar felgur, enginn þarna úti talar ensku og ég tala afskaplega litla þýsku. Fékk felgurnar seinnipartinn í dag sem er aðeins rúmlega 2 vikum seinna en lofað, þess vegna enginn tími til að þrasa meira í fólki sem skilur ekki prump í ensku. Mjög svekkjandi en alltof seint að fara að verða brjálaður yfir þessu, sel þetta síðar í sumar og versla mér eitthvað annað. Fékk þetta á góða verðinu og sel þetta auðveldlega fyrir kostnaði og sennilega aðeins rúmlega það. Engar myndir að svo stöddu þar sem þetta fór undir fyrir utan húsið í myrkrinu og svo þurfti ég að svappa fram- og afturfelgum vegna þess að ET25 komst ekki undir að framan vegna demparanudds. Er með ET15 að framan og ET25 að aftan sem kallar klárlega á spacera að aftan, fer þá líklega í 15mm spacera og eingöngu að aftan því að framdekkin standa nógu andskoti mikið út 8)

Nýr kveikjuhamar og hús, nýjir þræðir og ný kerti. Samt vill bíllinn ekki ganga almennilega hægaganginn, næst á dagskrá er hægagangsventill og athuga hvort greyjið sé að fá falskt loft inn á sig. Finn þetta á endanum, þetta er nú einu sinni bara gamall bíll sem þarf að klappa annað slagið....hef allavega aldrei lesið um E30 sem hefur haft ofnæmi fyrir verkstæðistíma og brasi. Mun taka myndir af bílnum þegar ég er búinn að þrífa hann og sjæna aðeins til. Snemma í fyrramálið verður skipt um olíu og fjarlægja ískur í afturbremsum, ætla líka að stilla swaybar að framan.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 30. Apr 2009 21:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Búinn að gera hrikalega góða hluti með þennan bíl! 8)

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 09:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Ekki góðar fréttir, mótor stop vegna mikilla óhljóða og líklegast eitthvað laust eða brotið í heddinu :cry: ætla mér að skoða þetta þegar ég treysti mér nálægt bílnum með verkfæri, er sérlega fúll núna og nenni engan veginn að standa í þessari vitleysu akkúrat núna. Búið að hlakka svo hrikalega til að komast á hringinn og horfa á kappakstur og fá að sitja í hjá TeamBe.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 10:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Brotinn rocker armur?

Afhverju seturru ekki ET25 að framann og ET15 að aftann?
Þá þarftu bara 10mm spacera hvoru meginn

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 10:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Rocker armur er orðið sem mig vantaði. Ég á ekki spacera akkúrat núna og án þeirra kemst ET25 ekki undir að framan vegna þess að demparinn er fyrir, vantar bara 3-4mm upp á að það passi. Var að láta mér detta í hug að selja felgurnar og sá peningur myndi duga fyrir M50 swappi, þarf hins vegar að róa mig aðeins niður áður en ég fer að taka ákvarðanir. Er ekkert sérstaklega hress með þetta og þarf að leggja höfuðið í bleyti (bjór) og skoða hvað er í boði. Geri ráð fyrir því að bílnum verði lagt í sumar ef þetta er alvarlegt, nota þá sumarið til að finna góðan M50 mótor sem er einmitt lögleg breyting á mínum bíl. Er akkúrat núna að skoða notaða mótora í Svíþjóð, nóg til af þessu þar og yfirleitt á ágætis verði. Bíllinn kemur heim eftir tæpa tvo tíma og þá ætla ég allavega að taka myndir af bílnum á felgunum. Hef ekki haft tíma til að skola af honum vegna þess að allur minn frítími undanfarið hefur verið notaður í viðhald og að leysa öll litlu vandamálin. Grunar að þetta hægagangsvesen hafi haft eitthvað með núverandi ástands bílsins að gera, þó ég viti það auðvitað ekki 100%.



Heddið fer allavega af fljótlega, þá kemur í ljós hver djöfullinn hefur gerst þarna inni. Ef að allt annað er heilt og ég kemst í aðstöðu í 2-3 vikur þá geri ég mótorinn upp. Ef að mótorinn reynist vera stærra verkefni, þá sel ég hann fyrir slikk og kaupi M50B25 og fer þá leiðina.
Veit eiginlega ekki hvað meira ég get sagt, fyrsta skipti sem ég lendi í svona brasi með bíl sem ég ætla mér að eiga áfram. Eyðilagði auðvitað Megane Coupe á kvartmílunni fyrir mörgum árum síðan en það var bíll sem ég ætlaði aldrei að eiga, selt fyrir slikk og svo bara haldið áfram. En ég er bara ástfanginn af þessum helvítis E30, þetta er æðislegt í notkun og hefur svo mikinn sjarma að mig hlakkar til í hvert skipti sem ég þarf að nota hann. Tekur bara sinn tíma þegar maður er á nemalaunum, en ég vissi svosum að svona bílar eru endalaust verkefni....þetta þarf meira viðhald en nýr bíll og það var ekkert leyndarmál. Mun setja inn myndir af bílnum eftir ca. klukkutíma, var búinn að lofa myndum.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 11:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Hræið komið heim, tók nokkrar myndir eingöngu til að sýna felgur. Var svo heppinn að fá stæði beint fyir utan húsið, gerist sjaldan og auðveldar mér helling að grúska hérna fyrir utan.

Image
Image
Image
Image
Image


Vantar klárlega spacera að aftan og fer í 15mm, þarf líka að kaupa lásbolta því að svona dóti er stolið ansi reglulega. En þetta eru hins vegar ekki felgurnar sem ég hafði planað að kaupa, það fór meira og minn allt úrskeiðis með þessi felgukaup. Finnst þær hins vegar lúmskt flottar en þetta er svona heldur mikið stretch fyrir minn smekk :?

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 11:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Bíllinn er samt alveg bilað svalur svona 8)

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 12:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Streched er málið. Loksons einhver sem veit hvernig e30 touring á að líta út. :wink: :wink:
Flott hvernig hann liggur

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 12:14 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. May 2003 11:10
Posts: 832
Location: rvk
Virkilega flottur já.

_________________
Aron
s.894-2066

E39 523i 19" BBS CH
E36 318i 17" BBS RX


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 12:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Þarft nú ekki að taka heddið af til í athuga hvort að rockerar og svoleiðis sé í lagi.
kíkir bara undir ventlalokið ;)

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 01. May 2009 12:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Og að sjálfsögðu var það á hreinu, en miðað við lætin þá grunar mig að heddið fari af. Ég er að reyna að finna mér skúr til að leigja í ca. 2 mánuði svo ég geti dundað mér í þessu. Tekur ekki nema 2-3 mínútur að fjarlægja ventlalok og skoða, langar bara ekki að nota meiri tíma í þetta í dag. Byrjaði daginn 07:30 og var að vinna í bílnum til 11:00 og svo gafst hann upp ca. hálftíma síðar.

Fer með hann inn fljótlega og skoða þetta betur, byrja á toppnum og vinn mig niður.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 595 posts ]  Go to page Previous  1 ... 17, 18, 19, 20, 21, 22, 23 ... 40  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group