Sælir, ég var að velta því fyrir mér hvort að einhverjir hérna gætu leiðbeint mér í þessum fríbils málum. Málið er að eins og fyrirsögning segir þá er smá fríbil í stýrinu hjá mér og ég hef heyrt eitt og annað um hvað gæti orsakað þetta. Það sem mig langar að heyra frá ykkur er hvernig maður dæmir það hvort að stýrisendi eða spindilkúla sé ónýt/ur. Því að mig langar að sjá að þetta sé allt í lagi áður en ég fer að skoða annað.
Skýringarmyndir væru vel þegnar
540 e34(touring) til sölu 316 e46 SS611 seldur 540 e34 TMK 79 seldur 320 e36 KY 398 ónýtur
væntanlega slag í stýrismaskínunni ... kallað dauðaslagið af sumum sem ég þekki .. ekki beint gaman að keyra á góðum hraða í beygju og draslið gefur sig
Minn bíll var með síversnandi fríbil í stýrinu, ég byrjaði bara á því að prófa að fara með hann í hjólastillingu og þar kom í ljós að dekkin voru eitthvað á skjön og slagið stýrinu lagaðist alveg þegar þetta var leiðrétt.