gardara wrote:DABBI SIG wrote:Ég bara þoli ekki að fara með bíl á smurstöð og fá hann útkámaðann í olíu til baka...þessvegna vil ég gera þetta sjálfur og líka vegna þess að maður hélt að maður væri að komast ódýrar frá þessu þar sem maður er með aðstöðu, hef gaman að þessu og hef þá litlu kunnáttu sem þarf.
Plús það hvað þetta tekur þá stuttan tíma.. Sem getur bara þýtt eitt, að gamla olían lekur ekki öll úr![]()
Ég lét olíuna leka úr mínum í alveg hátt í klukkutíma en þetta tekur hvað, 20mín á smurverkstæði....
Annars er það sniðug pæling um að kaupa olíuna í miklu magni fyrst maður gerir þetta sjálfur... Hefði náttúrulega verið ennþá sniðugra að byrgja sig upp fyrir kreppu... En hvernig er það annars, geymist svona olía endalaust? Eða er þetta eins og með bensín sem tapar eiginleikanum eftir því sem tímanum líður?
Það er algjört lykilatriði að hafa olíuna VEL heita þegar þú tappar af!
Síðan fylgistu bara með flæðinu, og þegar það fer að dropa mjög hægt er safe að setja tappan aftur í.
