Zed III wrote:Bjarkih wrote:Fattaði í dag að við losnuðum líka við Sigurð Kára af þingi

Einmitt, við vorum næstum búnir að fá bjór í matvöruverslanir. Eins gott að sleppa frá því, eða þannig.
Það er eftirsjá af honum amk frá mér, ég aðhyllist nefnilega frelsi.
Ég hef svosem ekkert á móti mörgu því sem hann lagði fram, en hann fann ekki upp á því að vilja lögleiða bjór í matvöruverslanir. Svo er það heldur ekki brýnasta málið í miðri kreppu. Svo var gæjinn alltaf fúll á móti sama hversu gott málefnið var.
Svo má bæta því við, þó svo ég sé frjálshyggjumaður í eðli mínu, þá er það þessi öfga frjálshyggja sem kom okkur þangað sem við erum í dag.