Hvern á að kjósa?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hvern á að kjósa?

Poll ended at Sat 25. Apr 2009 09:35

xB - Framsókn
9
6%
xD - Sjálfstæðisflokkur
37
25%
xF - Frjálslyndir
3
2%
xP - Lýðræðishreyfingin
4
3%
xO - Borgarahreyfingin
18
12%
xS - Samfylkingin
21
14%
xV - Vinstri grænir
6
4%
Skila auðu
23
16%
Óákveðinn
26
18%
 
Total votes : 147

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Bjarkih » Thu 23. Apr 2009 22:02

ValliFudd wrote:Ég hafði áhuga á að skoða xO þar til áðan. Þeir hafa ekki mörg mál á stefnuskrá en þau mál sem skipta þann flokk máli. Fínt. Óþarfi að hafa t.d. stefnuskrá í menntamálum, það er eitthvað sem þarf ekkert að spá of mikið í núna. Það virkar. Svo ég var alveg sáttur við þá.

EN. það kom fram í kvöld að þeir vilja þjóðaratkvæðagreiðslu á ALLT! Ég nenni bara ómögulega að standa í því að kjósa 2x í mánuði um einhver mál sem ég veit ekkert um. Ég kýs "stjórn" til að sjá um þau mál. Ekki stjórn sem þorir ekki að standa undir skoðunum sínum og ákvörðunum.



Valli minn, nú ertu eitthvað að misskilja hlutina. Við viljum einfaldlega gera fólki kleyft að biðja um þjóðaratkvæðagreiðslu ef eitthvað stórt mál kemur upp sem þjóðin er ósátt við. Það yrði þá gert með undirskriftasöfnun þar sem einhver viss prósenta kjósenda þyrfti að skrifa undir.
Það yrði mjög sjaldan sem þetta væri notað held ég, en þetta er fínasta aðhald fyrir alþingismenn.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Maddi.. » Thu 23. Apr 2009 22:28

Virðist sem margir sem ég þekki ætli að kjósa Vinstri græna...
Hvers vegna hafa þeir svona lítið fylgi hér?
Nú spyr ég bara til að afla mér fleiri sjónarhorna, ég er ekki enn ákveðinn.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Hvern á að kjósa?

Postby gunnar » Thu 23. Apr 2009 23:11

Maddi.. wrote:Virðist sem margir sem ég þekki ætli að kjósa Vinstri græna...
Hvers vegna hafa þeir svona lítið fylgi hér?
Nú spyr ég bara til að afla mér fleiri sjónarhorna, ég er ekki enn ákveðinn.


Sýnir bara hvað það er lítið magn vitleysinga hér inni..
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby SteiniDJ » Thu 23. Apr 2009 23:15

Ég hef tekið eftir því að margir sem fylgjast ekkert með stjórnmálum og vita ekkert meira en það að það sé kreppa í gangi segjast ætla að kjósa VG. Finnst það sorglegt...
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Bjarkih » Thu 23. Apr 2009 23:51

Maddi.. wrote:Virðist sem margir sem ég þekki ætli að kjósa Vinstri græna...
Hvers vegna hafa þeir svona lítið fylgi hér?
Nú spyr ég bara til að afla mér fleiri sjónarhorna, ég er ekki enn ákveðinn.


http://www.amx.is/fuglahvisl/6545/
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Hvern á að kjósa?

Postby ValliFudd » Thu 23. Apr 2009 23:55

Nú spyr ég spurningar sem Samfylkingarmenn þora ekki að svara þó þeir hafi oft verið spurðir.

Nú eru japanir búnir að afskrifa lán bankanna í Yenum. Af hverju í anskotanum eru bankarnir að taka bíla af fólki og bjóða upp þegar það getur ekki borgað bankanum yen-lánin sem er búið að afskrifa?

Ok ég veit að lánin eru ekki 100% í yenum, en af hverju í ósköpunum er ekki búið að lækka lánin þar sem það þarf ekki að borga þann hluta lánanna? Ég spyr þar sem ég skil ekki? Af hverju eiga bankarnir að græða á afskriftunum en EKKI þeir sem tóku lánin hjá þeim?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Maddi.. » Thu 23. Apr 2009 23:56

SteiniDJ wrote:Ég hef tekið eftir því að margir sem fylgjast ekkert með stjórnmálum og vita ekkert meira en það að það sé kreppa í gangi segjast ætla að kjósa VG. Finnst það sorglegt...


Held að það standist ágætlega við það sem ég er að tala um... Flestir af þeim sem ég umgengst eru um tvítugsaldurinn og fylgjast margir hverjir ekkert með stjórnmálum, og það eru þeir sem ég nefndi að ætla flestir að kjósa VG.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Bjarkih » Fri 24. Apr 2009 00:53

Maddi.. wrote:
SteiniDJ wrote:Ég hef tekið eftir því að margir sem fylgjast ekkert með stjórnmálum og vita ekkert meira en það að það sé kreppa í gangi segjast ætla að kjósa VG. Finnst það sorglegt...


Held að það standist ágætlega við það sem ég er að tala um... Flestir af þeim sem ég umgengst eru um tvítugsaldurinn og fylgjast margir hverjir ekkert með stjórnmálum, og það eru þeir sem ég nefndi að ætla flestir að kjósa VG.


Plato sagði:
"The punishment which the wise suffer who refuse to take part in the government, is to live under the government of worse men. "
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Hvern á að kjósa?

Postby ///MR HUNG » Fri 24. Apr 2009 01:36

IceDev wrote:Ugh....

Sturla Vörubíló/draugakall er í Frjálsó...

Þá sleppi ég því bara að kjósa

Hann er samt eini kallinn sem bílamenn vilja sjá inni reikna ég með.
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Re: Hvern á að kjósa?

Postby . » Fri 24. Apr 2009 03:16

///MR HUNG wrote:
IceDev wrote:Ugh....

Sturla Vörubíló/draugakall er í Frjálsó...

Þá sleppi ég því bara að kjósa

Hann er samt eini kallinn sem bílamenn vilja sjá inni reikna ég með.



Hefurðu heyrt mannin tala? :shock:
Bonjour 307 2005
BMW M-Zetor 2002
BMW 740 1996
Taxi 1972

BMW er reizing keppnistæki og bensar eru taxar
300.000 km eru nýju 200.000 km
User avatar
.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 878
Joined: Tue 21. Jan 2003 13:43
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Benz » Fri 24. Apr 2009 09:52

Ég hef nú ekki mikið verið að setja inn innlegg hér á kraftinum, hef nú meira verið að fylgjast með, en verð nú bara að segja að það er gaman að sjá virkilega málefnaleg innlegg hérna á Kraftinum varðandi pólitíkina þó svo í bland séu innlegg þar sem menn hafa því miður ekki kynnt sér málefnin nógu vel. Það er að mínu mati helsta vandamál okkar sem þjóðfélags að við erum einfaldlega ekki nógu vel upplýst.
"Fjórða valdið", fjölmiðlarnir, hafa nefnilega ekki staðið sig í stykkinu og RÚV, sem ætti að vera óháður miðill en er það bara alls ekki. Sjálfur var ég á móti fjölmiðlafrumvarpinu en nú í vetur kom í ljós að Davíð hafði nú bara nokkuð rétt fyrir sér :shock:

bebecar wrote:En með krónuna þá verða menn að átta sig á því að henni er EKKI hægt að skipta út nema með samning við annað ríki eða EU. Það er ekki einhliða hægt að taka upp annan gjaldmiðil nema AFSKRIFA allar eignir í krónum. Það fer engin að kaupa krónur af okkur ef við viljum ekki sjálf nota þær. Evra er því líklegasta leiðin til að taka upp annan gjaldmiðil nema hægt sé að semja við USA eða einhverja aðra um að fara inn í þeirra mynt. Maður er ekki alveg að sjá það gerast. Rekur ekki minni í fordæmi fyrir slíku. Smáríki ýmis hafa þó tekið upp evru t.d. en þau áttu náttúrulega ekki eigin gjaldmiðil heldur notuðust við evrópska gjaldmiðla (samanber Mónakó, San Marino etc, með samþykki EU þó!!!).

Það eru dæmi þess að ríki hafi tekið upp bandaríkjadollar án þess að hafa samið við Bandaríkin um það. Sú leið var farin í El Salvador og Ekvador árið 2000-2001. Í heild eru það níu sjálfstæð ríki í heiminum sem nota bandaríkjadollar sem lögeyri.
Sjá nánar í eftirfarandi grein:
http://www.efnahagur.is/index.php/Grein ... l_Valfells
M.v. ofangreinda grein þá ættum við að geta tekið upp dollarinn án mikilla vandkvæða - en það er svo spurning með áhugann á því.

Er annars sjálfur sama sinnis og Hamarinn að ég tel að vinstri stjórn muni ekki geta komið okkur úr þeim ógöngum sem við erum í. Í 65 ára sögu lýðveldisins hafa vinstri stjórnir aldrei náð þeim árangri að sitja út heilt kjörtímabil og oftast hefur þurft einhvern tíma til þess að "taka til" eftir klúðrið eftir þær. Þetta er því miður staðreynd :!:
Benedikt Hans Rúnarsson
User avatar
Benz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 270
Joined: Mon 29. Dec 2008 10:17
Location: Garðabær

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Benz » Fri 24. Apr 2009 10:00

///MR HUNG wrote:
IceDev wrote:Ugh....

Sturla Vörubíló/draugakall er í Frjálsó...

Þá sleppi ég því bara að kjósa

Hann er samt eini kallinn sem bílamenn vilja sjá inni reikna ég með.


Sturla fengi aldrei mitt atkvæði. Ekki frekar en Ástþór Magnússon eða Kolbrún Halldórsdóttir :!: :!:

En ekki má gleyma því að það er hægt að strika menn út af listum.
Í síðustu alþingiskosningum þá féllu Björn Bjarnason ( :twisted: ) og Árni Johnsen niður um 1 sæti þar sem þeir voru strikaðir út af listum sinna flokka í sínum kjördæmum.
Þrátt fyrir að Björn hafi verið annálaður Benz karl (sem er að vissu leyti prik hjá mér :lol: ), og að mörgu leyti staðið sig ágætlega sem dómsmálaráðherra, þá strikaði ég hann út þegar ég kaus Sjallann í Rvk. á sínum tíma eftir að hafa átt við hann 5 mín. persónuleg samskipti í verslun sem ég starfaði einu sinni hjá.
Framkoma hans var þess eðlis að ég kunni ekki við kauða og strikaði hann út.
Merkilegt hvað pólitíkusar geta stundum verið miklir sauðir, vantar "PR-elementið" í þá flesta - sem er að vissu leyti gott líka því þá sjáum við hvernig þeir eru í raun og veru :wink:
T.d. er Össur ótrúlegur kjáni eins og sannaðist á fundinum á RÚV. Hrikalegt klúður hjá honum :shock:
Benedikt Hans Rúnarsson
User avatar
Benz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 270
Joined: Mon 29. Dec 2008 10:17
Location: Garðabær

Re: Hvern á að kjósa?

Postby fart » Fri 24. Apr 2009 10:48

var össur með lummu í vörinn þegar spurningu var beint til hans um styrki ?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Fri 24. Apr 2009 11:05

Benz wrote:Ég hef nú ekki mikið verið að setja inn innlegg hér á kraftinum, hef nú meira verið að fylgjast með, en verð nú bara að segja að það er gaman að sjá virkilega málefnaleg innlegg hérna á Kraftinum varðandi pólitíkina þó svo í bland séu innlegg þar sem menn hafa því miður ekki kynnt sér málefnin nógu vel. Það er að mínu mati helsta vandamál okkar sem þjóðfélags að við erum einfaldlega ekki nógu vel upplýst.
"Fjórða valdið", fjölmiðlarnir, hafa nefnilega ekki staðið sig í stykkinu og RÚV, sem ætti að vera óháður miðill en er það bara alls ekki. Sjálfur var ég á móti fjölmiðlafrumvarpinu en nú í vetur kom í ljós að Davíð hafði nú bara nokkuð rétt fyrir sér :shock:

bebecar wrote:En með krónuna þá verða menn að átta sig á því að henni er EKKI hægt að skipta út nema með samning við annað ríki eða EU. Það er ekki einhliða hægt að taka upp annan gjaldmiðil nema AFSKRIFA allar eignir í krónum. Það fer engin að kaupa krónur af okkur ef við viljum ekki sjálf nota þær. Evra er því líklegasta leiðin til að taka upp annan gjaldmiðil nema hægt sé að semja við USA eða einhverja aðra um að fara inn í þeirra mynt. Maður er ekki alveg að sjá það gerast. Rekur ekki minni í fordæmi fyrir slíku. Smáríki ýmis hafa þó tekið upp evru t.d. en þau áttu náttúrulega ekki eigin gjaldmiðil heldur notuðust við evrópska gjaldmiðla (samanber Mónakó, San Marino etc, með samþykki EU þó!!!).

Það eru dæmi þess að ríki hafi tekið upp bandaríkjadollar án þess að hafa samið við Bandaríkin um það. Sú leið var farin í El Salvador og Ekvador árið 2000-2001. Í heild eru það níu sjálfstæð ríki í heiminum sem nota bandaríkjadollar sem lögeyri.
Sjá nánar í eftirfarandi grein:
http://www.efnahagur.is/index.php/Grein ... l_Valfells
M.v. ofangreinda grein þá ættum við að geta tekið upp dollarinn án mikilla vandkvæða - en það er svo spurning með áhugann á því.

Er annars sjálfur sama sinnis og Hamarinn að ég tel að vinstri stjórn muni ekki geta komið okkur úr þeim ógöngum sem við erum í. Í 65 ára sögu lýðveldisins hafa vinstri stjórnir aldrei náð þeim árangri að sitja út heilt kjörtímabil og oftast hefur þurft einhvern tíma til þess að "taka til" eftir klúðrið eftir þær. Þetta er því miður staðreynd :!:


Þetta var mjög forvitnileg grein :!:

En það sem ég er að tala um er að mig rekur ekki minni til þess að einhver lönd hafi samið við USA um að nota dollara (það eru samt alveg örugglega til einhver dæmi um það). En í megin atriðum þá er verið að tala um skipti annarsvegar (t.d. samningur Mónakó við EU um að nota Evrur en þeir notuðust við Franka ef ég man rétt, og fleira líklega, og skiptu þeir þeim bara út) en hinsvegar einhliða upptaka sem er eins og lýst er í greininni en það er í raun afskrift á peningalegum eignum í íslenskum krónum nema ríkið komi að hlutdeilingu á gjaldeyrisforða. Seðlar í umferð er bara lítill hluti. T.d. myndu laun standa í stað og verðlag hækka til að mæta þessari afskrift.

Þetta með prentunina á í hagkerfinu á dollurum er ég ekki alveg að sjá hvernig á að ganga upp þegar við erum ekki einu sinni með seðlabanka til að prenta... þetta er hinsvegar hægt í íslenskum krónum því þar erum við með hagstjórnina. Það má einhver útskýra ef ég er að misskilja þetta eitthvað.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Elnino » Fri 24. Apr 2009 13:44

Nú þegar allir tala um að skipta um gjaldmiðil þá langar mig að spurja, þar sem ég veit lítið um svona mál.

Hvernig er það ef tekinn er upp t.d. dollar eða evra. Á hvaða gengi myndi það vera?

Af hverju var ekki spáð í að skipta þegar krónan var í hæstu hæðum t.d. 2006-7, trúðu menn kannski að þessi geðveiki sem þetta var orðið myndi ganga endalaust.
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR
User avatar
Elnino
Getawaybílstjóri
 
Posts: 798
Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Location: Þorlákshöfn City!

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests