Giz wrote:
srr wrote:
elli wrote:
Er þetta eini E9 á landinu? Man ekki eftir öðrum í fljótu bragði

Það er einn annar amk.
Var fluttur inn í fyrra eða hitt í fyrra,,,, það kom mynd af honum hingað á kraftinn.
Var fyrir utan réttingar/sprautuverkstæði á skemmu/smiðjuvegi í kópavogi.
Þessi hér að ofan,, MA-007,,, er 2500 CS E9,, árgerð 1975.
Einn eigandi frá 1982 þegar hann kemur til Íslands.
Eigandinn er skráður á Seltjarnarnesi.
Nei, ekki alveg. Það er víst þessi nýlega innflutti já, þessi bíll hefur eins og réttilega er getið að hér að ofan á Seltjarnarnesi og hefur held ég verið þar alla tíð. Er reglulega notaður og kallinn helvíti reffilegur á honum
Svo er líka til rosalega góður bíll, Fjord blár, gamli Keiluhallarbíllinn svokallaði í gamla daga. Sá bíll er held ég kominn aftur til Akureyra í dag, hefur alla tíð verið með A xxx númeri. Sá bíll er verulega góður held ég í dag, var það allavega í alla tíð.
Asnaskapur að kaupa hann ekki af B&L á sínum tíma, hann var til sölu þar lengi, hefði fengist á slikk í reynd, enda höfðu þeir engann áhuga á honum, né vitneskju eða áhuga að mér fannst um hvað þeir höfðu í höndunum.
G
Sælir. Hér ber aðeins á ruglingi, svosem skiljanlegt. Rennum aðeins yfir þetta.
A1881 (3,0 CS, 1974) hans Tóta á Akureyri hefur alltaf verið á Akureyri, síðan hann kom till landsins, að undanskildum árunum í Rvík. þegar hann var í eigu barnabarns upprunalegs eigandi og svo B/L, sem Tóti kaupir hann af. Semsagt blár og fallegur Akureyrarbíll.
Annar (veit ekki númer) hans Jóns í Keiluhöllinni, 2,5 CS sjálfskiptur 1975 held ég, ljósblár. líklega Fjord Blue, minna spennandi týpa. Veit ekki um hann núna, myndi giska á að þráðurinn sé um hann...
Þriðji var fluttur inn talsvert tjónaður fyrir um 10 árum, eigandinn flutti síðan út, veit ekki sögu hans né lit frekar.
Fjórði er 2000CA árg 1968 með V378 á myndum, er í geymslu nálægt Akureyri eins og er. Innfluttur 1978, hefur verið með 4, 6 og 8 cyl mótorum eftir þörfum. Í honum eru tveir blöndungar, tveir snúningshraðamælar, enginn hraðamælir og svoleiðis slóð af vitleysum/eyðileggingum. Samt ók ég honum í nokkur ár og naut þess algjörlega í botn. Settur í geymslu fyrir nokkru og bíður enn.......því miður.
Ekki hef ég heyrt um þá fleiri en það þýðir ekki að þeir geti ekki hafa rekist til landsins, enda eitt af fallegustu bodyunum sem Karmann smíðaði, amk. fyrir BMW.
Þórður H.
Akureyri