Mr. X returns - farinn

Hér skal spjalla um BMW.

Re: Mr. X returns - deadline á skráningu 24. apríl

Postby gunnar » Wed 22. Apr 2009 17:32

Alpina wrote:Team € ...... were are you


Flúnir úr landi :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - deadline á skráningu 24. apríl

Postby bimmer » Thu 23. Apr 2009 12:14

Eitt atriði sem nokkrir hafa verið að spá í varðandi staðfestingargjaldið.

Þessar 100 evrur ganga upp í 400 evrurnar þannig að heildin er 400
evrur, ekki 500 evrur. Bara svo að það sé á hreinu.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - deadline á skráningu 24. apríl

Postby bimmer » Sun 17. May 2009 19:34

Jæja þá er búið að græja flug fyrir kappann - hann lendir 2. júní og
fer aftur 6. júní. Byrjað verður að tjúna 3. júní.

Ég mun hafa samband við þá sem eru skráðir og útdeila þeim tíma.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - 2. til 6. júní

Postby Schulii » Sun 17. May 2009 20:29

:clap: :clap:
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - 2. til 6. júní

Postby Jón Ragnar » Sun 17. May 2009 21:46

Eflaust MJÖG stíft prógram hjá karlinum!
á eftir að gera margt gott samt 8)

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Mr. X returns - 2. til 6. júní

Postby Alpina » Wed 20. May 2009 08:09

Eins og áður er sagt ...........

Töffið er svo mikið að það lekur af honum,, en alveg full innistæða fyrir því,, MEGA snillingur í ecu uppgrade
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Mr. X returns - 2. til 6. júní

Postby bimmer » Mon 01. Jun 2009 17:15

Jæja nú lendir Hr. X annað kvöld og svo verður byrjað að mappa á
miðvikudag. Er búinn að senda á alla sem eru búnir að borga staðfestingargjald
og útdeila þeim tíma. Ef einhver hefur ekki fengið ep/email þá hafið
samband við mig sem fyrst.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - 2. til 6. júní

Postby Alpina » Mon 01. Jun 2009 17:15

.......
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Mr. X returns - 2. til 6. júní

Postby bimmer » Mon 01. Jun 2009 17:18

Alpina wrote:.......



?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - lendir annað kvöld

Postby Alpina » Mon 01. Jun 2009 17:20

Mr. broke
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Mr. X returns - lendir annað kvöld

Postby bimmer » Sun 07. Jun 2009 22:19

Þá er kappinn farinn út aftur - búið að vera STÍFT prógramm!!!

Hann semsagt kom seint á þriðjudagskvöld þannig að við byrjuðum ekki
fyrr en morguninn eftir. Þá var tekinn fyrst Skoda Oktavia RS (2.0 turbo
bensín) sem var 190+ hp og fékk ca. 50 í viðbót.

Næstur í röðinni var ofur leigubíll, AMG E55 í eigu Andra. Hann var að finna
hellings mun. Svo lét hann lét rífa úr bílnum hvarfakútana og náði 0-100 á
4.3 sekúndum eftir það.

Svo kom nú trouble makerinn :lol: Óli á OPC. Hann var sumsé með tjúnaðan
bíl og var með nokkur möpp sem hann gat svissað á milli. Vesenið hjá honum
var að þegar hann var að rönna mest agressive mappinu þá fór bíllinn að freta
og fór í limp mode. Fyrst ætlaði Hr. X að eiga eitthvað við þessi tuner möp
en þau reyndust læst. Þannig að Óli ætlaði að kalla fram original mappið með
því að hlaða inn eitt af tuner möppunum og rífa síðan programming græjuna
úr sambandi í miðjum klíðum - vildi meina að þá myndi tölvan defaulta í
stock mappið. Hr. X hváði nú við þessu en leyfði honum að prufa.

Virkaði ekki :lol: Bíllinn steindauður. Hr. X fór í að redda original mappi til að
vinna með og eftir að það var komið í fóru þeir að rúnta. Fengu fínt power en
alltaf var sama vesenið, forsprengingar í 4. og 5. gír, sérstaklega ef búið var
að taka fleiri en 1 run. Ýmislegt var reynt, ma. önnur kerti sem Óli átti:
Image

En allt kom fyrir ekki. Það skrýtna er að það er bíll í UK sem Óli veit um sem gengur
fínt á þessum möppum og er með nákvæmlega sömu breytingum. Eftir að hafa pælt
í þessu mundi ég eftir að Óli hafði eitthvað minnst á heddvinnu og fórum við þá
að skoða myndir sem hann átti af heddinu áður en það fór í:
Image

Þarna sá karlinn hluti sem honum leist ekki á - rispur og nibbur sem geta virkað
eins og "kerti" þegar þetta er orðið funheitt. Þannig að heddið þarf að fara af
og það þarf að slípa það betur til. Einnig kom mail um kvöldið frá vini Hr. X sem
var þá búinn að cracka læsta mappið þannig að Hr. X gat skoðað það. Hann
var ekki sáttur við það - t.d. var búið að hækka "gólfið" í því hversu mikið væri hægt
að draga kveikju til baka ef það væri farið að knocka, ekki gott.

Allavega, klukkan orðin hálf eitt og þessi bíll var nú búinn að taka 12 tíma og fokka
upp öllu tímaplani hjá okkur, búnir að ýta öðrum bílum til næsta dags.

Á miðvikudeginum var fyrsti bíll E34 M5 með 3.6 lítra vél. Planið var að gera
svokallað maf delete eða semsagt að forrita mótortölvuna til að nota ekki
loftflæðimælinn. Í staðinn átti að nota Alpha-N möppun sem gengur á að nota
stöðuna á inngjöfinni (Alpha) og snúning (N) sem viðmiðunargildi fyrir vélartölvuna
til að ákvarða bensín/kveikju.

Því miður gekk þetta ekki þar sem skynjarinn á inngjöfinni (TPS) var bæði of grófur,
þe. hafði bara 3 stillingar (lausagangur, milligjöf og full throttle) og svo að full throttle
stillingin virkaði ekki. Þannig að því miður gekk þetta ekki.

Næstur í röðinni var Audi A3 með 2.0 turbo bensín, sama og Skódinn.
Eigandinn varð mjög sáttur við útkomuna!

Á eftir Audi kom svo E90 320d og varð eigandinn svo glaður með remappið að
hann sagði "Nú get ég átt þennan bíl áfram" :lol:

Sjöan hjá Sigga Shark var næst í röðinni í MAF delete og vmax delete.
Bíllinn er með þreyttan lausagangsventil og tók svolítinn tíma að fá hann
góðan en tókst. Þessi bíll kom mér reyndar á óvart - svona beinskipt V8 sjöa
er alveg að virka.

Að lokum þennan daginn var það CABRIO sem fékk MAF delete og var Sveinki
svo sáttur að hann er sannfærður um að nú búi F1 mótor í húddinu :lol:

Á föstudaginn fórum við svo að vinna í mínum M5 fram eftir degi við að mappa
hann Alpha-N. Einnig settum við í hann auka blowoff ventil:
Image

Þetta er semsagt ventill sem er hannaður af Hr. X og smíðaður á CNC verkstæðinu
sem hann er með í Danmörku. Hér er hann svo kominn í:
Image

Eftir hádegi kom svo Skúli með sinn E39 520d og fékk hann remap sem gerði hann
mjög glaðan :lol:

Svo kom Óli félagi hans Andra með sinn 911 Turbo.

Image

Þessi bíll var ekki að virka sem skyldi. Hann hafði sett í hann map frá þýskum tuner og
hafði það virkað mjög vel í 2 tíma en eftir það var bíllinn loppinn. Þeir félagarnir voru
búnir að liggja yfir bílnum í 2-3 vikur við að reyna að finna út úr þessu. Hr. X húkkaði
upp tölvuna sína og fór einn rúnt. Hann sá strax hvað málið var - boost control ventill var
bilaður og svo fannst honum þetta map frekar skuggalegt varðandi hvað það leyfði bílnum að
ganga lean. Þannig að það var farið upp í Bílabúð Benna og bílnum hent upp á lyftu.
Svo hófst leitin að þessum ventli í bílnum og karlinn fann hann eftir smá stund.

Meðan þeir leituðu eftir nýjum hjá Benna fórum við upp í gamla BogL í opnunarteitið hjá Bjarka
og co. - bara í lagi. Eftir smá spjall, öl/gos var haldið aftur niður í Bílabúð Benna.

Nú var þessi ventill ekki til á lager þannig að einn slíkur var gripinn úr næsta Cayenne
Turbo sem nota sama ventil. Það var algjört helvíti að koma þessu fyrir enda er
vélarrúmið í Porsche 911 þrengra en allt þröngt. Tókst þó að lokum og þá fóru Óli
og Hr. X út að mappa. Þegar þarna var komið var farið að rigna hressilega.

Þegar þeir komu til baka var allt komið í lag - bíllinn farinn að virka og búið að setja í
hann launch control. Þeir voru að ná 4.2 sek 0-100 aftur og aftur í rigningunni :thup:

Næsti bíll á dagskrá var M6. Hann tók ekki langan tíma enda Hr. X þaulvanur þessum
nýrri bílum. Hann var sá fyrsti í Evrópu til að disabla alla hraðatakmarkarana - helv. gaurarnir
hjá BMW höfðu falið einn í viðbót sem menn voru ekki að finna. Þessi var settur í 300 þannig
að menn voru farnir að skjóta á BMW að bíllinn væri bara ekki nógu öflugur til að fara hraðar :lol:

Á laugardaginn byrjuðum við á mínum bíl. Næsti á dagskrá var Audi S4 sem gekk ágætlega
og svo komumst við loksins í að vinna í E34 "M5" bílinn hans Sæma. Hann vildi fá MAF delete
og delimit. Það gekk fínt og reynda kom í ljós að búið var að eiga við tölvuna áður, var ekki
stock.

Þegar þessir 2 voru búnir fórum við aftur að vinna í mínum.
Image

Vorum búnir að gera fínt map og vorum að fullvissa okkur um að það væri í lagi. Undanfarnar
vikur hefur verið að koma "ýlfur" úr öðrum blásaranum og var það nú orðið hrikalega hávært
og svo var blásarinn farinn að læsast/hiksta þannig að..... :

Image

Betra heldur en að hún færi með þeim ósköpum sem við höfum lent í áður.

Hr. X þekkir kallinn sem á Rotrex og ætlar að redda nýjum á góðum prís.

Skutlaði honum svo út á völl á NA útgáfu af M5 :lol:

Þetta voru helvíti skemmtilegir dagar - stíft prógramm og fullt af ánægðum bíleigendum :thup:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - farinn

Postby Alpina » Sun 07. Jun 2009 22:23

Hann kann þetta,,

ætlaði hann ekki að fá sér VEMS tölvu
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Mr. X returns - farinn

Postby bimmer » Sun 07. Jun 2009 22:27

Alpina wrote:Hann kann þetta,,

ætlaði hann ekki að fá sér VEMS tölvu


Hann líkti henni við klósettpappír :?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - farinn

Postby siggik1 » Sun 07. Jun 2009 22:36

úff hefur verið stíft, greinilegt að maður er að fá allt fyrir peninginn hjá honum þessum ...
User avatar
siggik1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1445
Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Location: Reykjavík

Re: Mr. X returns - farinn

Postby gstuning » Sun 07. Jun 2009 22:37

Vildi hann EKKI ?
Trúi því varla

hehe.

Leiðinlegt vesen á þessum OPC.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests