Hvern á að kjósa?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hvern á að kjósa?

Poll ended at Sat 25. Apr 2009 09:35

xB - Framsókn
9
6%
xD - Sjálfstæðisflokkur
37
25%
xF - Frjálslyndir
3
2%
xP - Lýðræðishreyfingin
4
3%
xO - Borgarahreyfingin
18
12%
xS - Samfylkingin
21
14%
xV - Vinstri grænir
6
4%
Skila auðu
23
16%
Óákveðinn
26
18%
 
Total votes : 147

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Alpina » Tue 21. Apr 2009 06:37

bebecar wrote:Ég tek undir það að ég get fyrir mitt leiti lítið sett út á þennan málefna lista F-listans (þetta er listinn sem D ætti að vera að berjast fyrir!)

Ég hef hinsvegar mikinn fyrirvara á mér gagnvart þeim sem eru í framboði fyrir flokkinn.



Á þetta ekki við um allflesta eins og staðan er ,,,,,,
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Tue 21. Apr 2009 07:01

Alpina wrote:
bebecar wrote:Ég tek undir það að ég get fyrir mitt leiti lítið sett út á þennan málefna lista F-listans (þetta er listinn sem D ætti að vera að berjast fyrir!)

Ég hef hinsvegar mikinn fyrirvara á mér gagnvart þeim sem eru í framboði fyrir flokkinn.



Á þetta ekki við um allflesta eins og staðan er ,,,,,,


Jú, reyndar :(
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Aron Fridrik » Tue 21. Apr 2009 07:22

Bjarkih wrote:Hvað sem þið gerið, ekki skila auðu. Þá eruð þið bara að samþykkja núverandi klúður. Til að breyta einhverju þá þarf að fá nýtt fólk inn á þing. Ég er búinn að vera að starfa mikið með borgarahreyfingunni og er meira að segja á lista hjá þeim hér fyrir norðan. Það er vegna þess að ég trúi því að það sé besta leiðinn til að bæta hag þjóðarinnar.
Ég var að koma af löngum og gagnslausum kosningafundi þar sem voru fulltrúar allra nema ástþórs. Það bulluðu allir það sama og venjulega án þess að segja neitt sem hægt var að setja fingur á nema Frjálslyndir og borgarahreyfing. Samfylkingin var t.d. að bulla um álversbyggingar þó að það sé vitað mál að það er enginn að fara að byggja álver næstu árin, það er niðurskurður í greininni núna.
Skoðið allavega heimasíðuna [url]xo.is[/url] og svo get ég reynt að svara spurningum sem vakna. Samfylkingin brást traustinu, þau lofuðu félagshyggju stjórn fyrir kosningar 2007. VG raupaði um alþjóða gjaldeyrissjóðinn og icesave en svo beygja þeir sig bara með þeim í sturtunni þegar þeir eru komnir til valda. Og framsókn og sjálfstæðisflokkur komu okkur náttúrulega í þetta með fáránlegri hagstjórn.


WTF ?

þið eruð ekki einu sinni með neina stefnu í menntamálum :?
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Tue 21. Apr 2009 08:09

Aron Fridrik wrote:
Bjarkih wrote:Hvað sem þið gerið, ekki skila auðu. Þá eruð þið bara að samþykkja núverandi klúður. Til að breyta einhverju þá þarf að fá nýtt fólk inn á þing. Ég er búinn að vera að starfa mikið með borgarahreyfingunni og er meira að segja á lista hjá þeim hér fyrir norðan. Það er vegna þess að ég trúi því að það sé besta leiðinn til að bæta hag þjóðarinnar.
Ég var að koma af löngum og gagnslausum kosningafundi þar sem voru fulltrúar allra nema ástþórs. Það bulluðu allir það sama og venjulega án þess að segja neitt sem hægt var að setja fingur á nema Frjálslyndir og borgarahreyfing. Samfylkingin var t.d. að bulla um álversbyggingar þó að það sé vitað mál að það er enginn að fara að byggja álver næstu árin, það er niðurskurður í greininni núna.
Skoðið allavega heimasíðuna [url]xo.is[/url] og svo get ég reynt að svara spurningum sem vakna. Samfylkingin brást traustinu, þau lofuðu félagshyggju stjórn fyrir kosningar 2007. VG raupaði um alþjóða gjaldeyrissjóðinn og icesave en svo beygja þeir sig bara með þeim í sturtunni þegar þeir eru komnir til valda. Og framsókn og sjálfstæðisflokkur komu okkur náttúrulega í þetta með fáránlegri hagstjórn.


WTF ?

þið eruð ekki einu sinni með neina stefnu í menntamálum :?


Var það ekki Borgarahreyfingin sem ætlar á þing til að koma fáum tilteknum málefnum af stað og tekur ekki afstöðu í félagshyggju/frjálshyggju pakkanum? Mig rámar í þetta allavega þó ég vilji ekki fullyrða neitt um það.

Það kemur alveg fyrir að flokkar fari á þing með eitt málefni (ESB, kvótakerfið o.s.frv.) - það þarf ekki stefnu í öllu ef þú ætlar ekki að hafa áhrif á allt.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Giz » Tue 21. Apr 2009 08:13

bebecar wrote:Ég tek undir það að ég get fyrir mitt leiti lítið sett út á þennan málefna lista F-listans (þetta er listinn sem D ætti að vera að berjast fyrir!)

Ég hef hinsvegar mikinn fyrirvara á mér gagnvart þeim sem eru í framboði fyrir flokkinn.


Erm, Ingvar þó... :!: :o
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Tue 21. Apr 2009 08:41

Giz wrote:
bebecar wrote:Ég tek undir það að ég get fyrir mitt leiti lítið sett út á þennan málefna lista F-listans (þetta er listinn sem D ætti að vera að berjast fyrir!)

Ég hef hinsvegar mikinn fyrirvara á mér gagnvart þeim sem eru í framboði fyrir flokkinn.


Erm, Ingvar þó... :!: :o


Hvað :D Er eitthvað á þessum lista sem þú ert ósammála?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Giz » Tue 21. Apr 2009 08:51

bebecar wrote:
Giz wrote:
bebecar wrote:Ég tek undir það að ég get fyrir mitt leiti lítið sett út á þennan málefna lista F-listans (þetta er listinn sem D ætti að vera að berjast fyrir!)

Ég hef hinsvegar mikinn fyrirvara á mér gagnvart þeim sem eru í framboði fyrir flokkinn.


Erm, Ingvar þó... :!: :o


Hvað :D Er eitthvað á þessum lista sem þú ert ósammála?


Tja, getum tekið það yfir bjór eftir 10 daga eða svo. En ef þessi Evrópuromsa þarna í endann er lesinn, get ég ekki séð hvar frekara samstarf á að fara fram eins og upp er lagt þarna.

Svo væri að sjálfsögðu eins og með alla aðra gaman að sjá framkvæmdina, eða öllu heldur hvernig framkvæma skuli hlutina sem lofað er...
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Svezel » Tue 21. Apr 2009 09:22

Ég er nú ekki ákveðinn ennþá en veit þó að ég get ekki kosið fólk sem hefur það eitt á stefnuskránni að hækka skatta og taka peninga af því fáa fólki sem fór ekki framúr sér í góðærinu.

Líst eiginlega skást á framsókn, þeir hafa þó gefið skýr svör varðandi húsnæðislánin og hafa einir flokka myndað sér stefnu í upplýsingatækni.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: Hvern á að kjósa?

Postby grettir » Tue 21. Apr 2009 09:51

ValliFudd wrote:...
Og svo er hér plan Samfylkingar og vinstri grænna.. Me not like :?
Image


Ég get nú ekki sagt að ég sé hlynntur því að menn borgi misháa prósentu í skatta, en þessi framsetning er auðvitað út úr kú.
Þarna eru tilgreind mánaðarlaun en hátekjuskattur yfir árið.
Sá sem er með 600.000 í mánaðarlaun er með 7.200.000 í árslaun og borgar af því aukalega 36.000

En það skelfir menn auðvitað meira að setja 36.000 kallinn við hliðina á mánaðarlaununum.

Sjálfstæðismenn hafa heldur ekki svarað því hvernig þeir ætla að brúa fjárlagahallann sem þeir skilja eftir sig. Gagnrýna bara þá sem eru í tiltektinni.
Svona svipað og fólk myndi mæta eftir geðveikt fyllerí í húsnæði sem þeir lögðu í rúst kvöldið áður og gagnrýna skúringafólkið fyrir að vera með gula skúringafötu en ekki einhvern veginn öðruvísi.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Jón Ragnar » Tue 21. Apr 2009 10:06

Framsókn lofar alltaf betur og betur :shock:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Hvern á að kjósa?

Postby grettir » Tue 21. Apr 2009 10:08

Jónas wrote:... Og fjármagnsskattur REFSAR þeim sem hafa verið skynsamir undanfarin ár og SPARAÐ.

Það er súrt að borga skatta, en tekjur eru bara tekjur, hvort sem þær heita launatekjur eða fjármagnstekjur.

Sá sem er með 500.000 í mánaðarlaun borgar ca. 180.000 í skatt (tæplega 40% í tekjuskatt og útsvar - persónuafsláttur)
Sá sem fær 500.000 í vaxtatekjur og verðbætur á mánuði borgar 50.000 í fjármagnstekjuskatt.
Hvor er það sem er rauður á rassgatinu eftir refsivöndinn?

Sá sem fær 500.000 í vaxtatekjur á hið minnsta 25.000.000 inni á verðtryggðri bók (7-8% vextir + 17-18% verðtrygging)
Hvers vegna má hann ekki borga aðeins meira í fjármagnstekjuskatt?

Best væri fyrir launþega ef settur væri flatur skattur á allar tekjur. 20% væri fínt fyrir launþega.

Aðgerðir ríkisins fyrst eftir hrunið var að tryggja að allar innistæður væru tryggðar, mörgum milljörðum var mokað inn í Sjóð 9 til dæmis til að tryggja eignir fjármagns- og sparifjáreigenda.

Sjálfstæðisflokkur hefur slegið skjaldborg um kvótakónga, fjárhirða og stofnfjáreigendur.
Þeir sem hafa verið skynsamir og sparað geta vissulega notið góðs af þeirri stefnu, en almennir launþegar ættu ekki undir neinum kringumstæðum að kjósa þann flokk.

Þessi kosningabarátta er löngu hætt að snúast um málefni. Það er ekkert mál að hrista eitthvað framúr erminni sem lítur vel út á blaði. Spurningin er hverjum við treystum.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Zed III » Tue 21. Apr 2009 10:31

Á ekkert að ræða það að sjálfstæðisflokkurinn er lang stæðstur í þessari könnun?

Ef menn hafa vit á að velja bmw þá hlýtur að vera hægt að treysta þeim fyrir að velja réttan flokk, er það ekki ?

Ég hlustaði á Bjarna Ben í morgun á Bylgjunni að hann kom vel út úr þeim þætti. Eina sem ég er ekki að kaupa hjá þeim er afstaðan með kvótakerfið, en þar held ég að takmörkun við beinni sölu eða útleigu kvóta væri málið.

Verð að segja að þó þeir hafi gert uppá bak í nokkrum málum (sem þeir viðurkenna fúslega) þá finnst mér eftir þessa endurnýjun þeirra þeir vera trúverðugastir í atvinnuuppbyggingu landsins.

Hlægileg samfylking
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Bjarkih » Tue 21. Apr 2009 16:26

Ég veit nú ekki betur til en að samfylkingin hafi lofað ókeypis tannlækningum og skólabókum fyrir síðustu kosningar.
Varðandi þá umkvörtun að Borgarahreyfingin sé ekki með stefnu í hinum og þessum málaflokk þá er það skiljanlegt. Vandamálið er að það eru bara 7 vikur síðan þetta framboð var sett í gang, ef menn ætla að sína ábyrgð þá tekur það lengri tíma, það hefði verið auðvelt fyrir okkur að búa til loforðalista sem vitað er að ekki er hægt að standa við (svona eins og hinir flokkarnir gera) en þannig vinnum við ekki.
Það er skýr stefna með húsnæðismálin, þetta er allt á heimasíðunni og það eru video á youtube fyrir þá sem vilja það form frekar.

Hlutverk þeirra sem eru kosnir á þing er að setja lög sem stýra framkvæmdarvaldinu, ekki samþykja eftirá það sem framkvæmdavaldið ætlar sér að gera, en þannig hefur alþingi því miður starfað í fjölda mörg ár.
Við viljum ekki hrófla við velferðarkerfinu, efst á niðurskurðarlistanum okkar eru hlutir eins og varnarmálastofa og svo má skera feitt niður í utanríkisþjónustu og stjórnsýslunni yfir höfuð. Það fara fáránlega miklir peningar í reksturinn á ríkinu, og við virðumst ekki vera að fá mikið í staðinn.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Zed III » Tue 21. Apr 2009 18:07

Bjarkih wrote:Ég veit nú ekki betur til en að samfylkingin hafi lofað ókeypis tannlækningum og skólabókum fyrir síðustu kosningar.
Varðandi þá umkvörtun að Borgarahreyfingin sé ekki með stefnu í hinum og þessum málaflokk þá er það skiljanlegt. Vandamálið er að það eru bara 7 vikur síðan þetta framboð var sett í gang, ef menn ætla að sína ábyrgð þá tekur það lengri tíma, það hefði verið auðvelt fyrir okkur að búa til loforðalista sem vitað er að ekki er hægt að standa við (svona eins og hinir flokkarnir gera) en þannig vinnum við ekki.
Það er skýr stefna með húsnæðismálin, þetta er allt á heimasíðunni og það eru video á youtube fyrir þá sem vilja það form frekar.

Hlutverk þeirra sem eru kosnir á þing er að setja lög sem stýra framkvæmdarvaldinu, ekki samþykja eftirá það sem framkvæmdavaldið ætlar sér að gera, en þannig hefur alþingi því miður starfað í fjölda mörg ár.
Við viljum ekki hrófla við velferðarkerfinu, efst á niðurskurðarlistanum okkar eru hlutir eins og varnarmálastofa og svo má skera feitt niður í utanríkisþjónustu og stjórnsýslunni yfir höfuð. Það fara fáránlega miklir peningar í reksturinn á ríkinu, og við virðumst ekki vera að fá mikið í staðinn.


Ég tek undir það að það er óþarfi að hafa fyrirframmarkaða stefnu fyrir hvert og eitt málefni. í mínum huga er verra að þykjast hafa skoðun á því sem menn skilja ekki eða hafa ekki sett sig inní og því er betra að marka stefnuna síðar í anda þess sem flokkur stendur fyrir. Ég held þó að það megi alveg hrista upp í þessu velferðarkerfi og sjá hvað kemur niður. Fjöldi öryrkja t.d. er svakalega hár og það er víða sem má tekjutengja í velferðarkerfinu.

Ég verð þó að segja að mér finnst vanta einhvern meiri neista í frambjóðendur hreyfingarinnar og meiri karaktera. Þráinn Bertels að gjamma með míkrafón á Laugaveginum er ekki að kveikja í mér (hann minnti mig á liðið sem boðar heimsendi á götuhornum). Það kemur vonandi neisti síðar í þessa hreyfingu og vonandi fá þeir menn á þing, þó það sé ólíklegt að þeir muni hafa einhver áhrif þar.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Jónas » Tue 21. Apr 2009 18:09

grettir wrote:
Jónas wrote:... Og fjármagnsskattur REFSAR þeim sem hafa verið skynsamir undanfarin ár og SPARAÐ.

Það er súrt að borga skatta, en tekjur eru bara tekjur, hvort sem þær heita launatekjur eða fjármagnstekjur.


Ef fjármagnsskattur fer í 40% þá minnkar sparnaðarhneigð mikið.

Hvað gerist þá? Hvernig eiga bankarnir að lána pening?

Bankarnir þurfa að taka við innlánum til að veita útlán
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests