Jónas wrote:
Núna á ég ekki fasteign og á bílinn minn lánalausan, þannig að ég er ekki í þessari krísu.
En hinsvegar get ég sett mig í spor þeirra sem hafa það slæmt, þannig að ég VERÐ AÐ SPYRJA þegar að ég sá þetta frá hagsmunasamtökum heimilana...
Hvað ætlar samfylkingin að gera?
Leiðrétta gengis- og verðtryggð lán heimilana?
- Með almennum aðferðum og sértækum í þágu hinna verst stöddu [ ?? ]
Nenni ekki að skrifa restina..
Gætu alveg eins hafa sagt í alla reitina: "Með einhverjum aðgerðum sem við höfum ekki hugmynd um hverjar eru"
Hvað ætla VG að gera?
Leiðrétta gengis- og verðtryggð lán heimilana?
Skapa aðstæður fyrir lántaka til að geta haldið áfram að greiða af skuldbindingum sínum [???]
Sama gildir fyrir VG og Samfylkinguna. Þeir hafa ekki jackshit til að svara þessu.
Einnig set ég stórt spurningarmerki fyrir framan það hjá Borgarahreyfingunni að "færa" vísitöluna til baka (??) til janúar 2008, breyta gjaldeyrislánum í ISK og færa niður og festa vexti??
Hvaðan koma peningarnir í það?
Hef ekki sett mig inní hugmyndir Framsóknar um 20% afskrift en Tryggvi Þór hefur talað fyrir henni og hann er enginn vitleysingur, þannig að mér finnst sjálfsagt að fólk hætti að hrauna yfir Framsókn og Tryggva sem félag og einstakling og reikni frekar út og skoði þessa hugmynd.
XF og XD hafa sambærilegar hugmyndir sem gætu verið raunhæfar..
En það er samt alltaf spurning hvað er hægt að gera, svona raunhæft séð... Er það ekki eðlilegt að þeir sem hafa gírað sig í botn með botnlausum neyslulánum og keypt fasteignir fyrir alltof háar upphæðir fari í gjaldþrot? Er það ekki eðlilegt ferli?
Núna tala VG um eignaskatta, hátekjuskatta og hækkun á fjármagnsskatti? Á hverjum kemur það niður?
- Eignaskatturinn kemur niður á eldra fólki sem hefur t.d. greitt fasteign sína niður yfir sitt líftímabil, hátekjuskattur gæti haft þveröfug áhrif, þ.e. lækka $$ sem skilar sér í kassann... Og fjármagnsskattur REFSAR þeim sem hafa verið skynsamir undanfarin ár og SPARAÐ.
Virkilega góður póstur Jónas.
Varpar góðu ljósi á málin eins og þau standa fyrir leikmann eins og mig sem nennir ekki að fylgjast of mikið með stjórnmálum
