Guðlaugur Þór mætti hér í Olís með smá fyrirlestur um það hve frábær Sjálfstæðisflokkurinn er og hvað þetta sé ekkert þeim að kenna.
Hann kom með mjög einfalda útskýringu á þessu.
Hann sagði ástandið vera eins og það er, vegna flokkana sem hafa verið í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Og að þeir hafi þurft að gera ýmislegt sem þeir hafi ekki viljað gera til að halda samstarfinu áfram.
Basically kenndi hann öllum þeim sem hafa verið í stjórn MEÐ Sjálfstæðisflokknum um hrunið mikla. Og sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa reynt allt til að gera rétt, en hinir flokkarnir hafi klúðrað þessu. Þegar hann ældi þessu útúr sér, fóru nú nokkuð margir útúr salnum. Og munu líklega ekki kjósa þennan flokk. Hver vill fara í samstarf með flokk sem lætur svona?
