Jæjja..
Núna fer sumarið að renna í garð og ekker annað í stöðuni þar sem Touringin hjá mér er vélarvana að ná í númerin af þessum snilldar bíl. SN111
Mikið brotið og bramlað eftir seinasta sumar eftir öll átökin og er bílinn meira minna búin að standa bara síðan í oktober.
Það sem ég vissi að var bilað var að það pústaði út með pústgreinini og boltarnir ekki lengur til staðar í heddinu á aftasta cyl, vatnsdælan lak meðfram pakkningu, leki á gírkassa, brotin flangsinn aftaná gírkassanum, leki á stýri.
Ég ákvað bara að rífa vélina úr til að laga þetta allt.
Vélin uppúr


Vantaði alla bolta á aftasta.

kom svo í ljós að flangsinn á 3cyl var brotinn frá.
Pússaði þetta allt upp og setti nýjar oem pakkingar.



Þá er gott aðvera ALVÖRU ///M Power toffari og eiga auka sett af s14 flækjum


Síðan þegar ég var að laga kassan, herða hann saman kom smellur og ég BRAUT stykki úr miðjuhúsinu á euro Dogleg kassanum.! EKKI gott.
Ég kláraði að setja vélina ofaní og núna vantar bara kassa og pústkerfi undir bílinn.
Fer í það að reyna laga kassan eftir páskafríið.

Þessi veðrur allavegana vel útá hlið í sumar og á eftir að skemmta fólki.!
Ég ætla að vona að núna taki við velgengni í mínum bílum, (ekkert annað en tómt bras á mér seinustu vikur)
Kv.