Datt í hug að setja inn smá update hér...
Ég setti sem sagt þessa mótorpúða sem ég keypti í N1 undir bílinn og fór í jeppaferð.
Ég var búinn að keyra svona 50 km á þessu stöffi þegar einn púðinn gaf sig
Málið er það, og þetta er eiginlega hálfgert klúður að minni hálfu að púðarnir sem ég keypti eru eiginlega "steyptir" í sitthvorn endann. Það er þá þannig að það er bara platti með bolta límdur sitt hvoru megin við gúmmíið. Þannig að þegar kassinn "togar" upp þegar maður er á inngjöf þá reif hann bara púðann í sundur
Púðarnir leit ca svona út:

Svona græjaði ég þetta í ferðinni. Strappaði ss bara kassann niður. Þetta hélt svona ágætlega, náði stundum að losa sig þó.



Leysti þetta svo svona:

Sem betur fer var einn í ferðinni með borvél á sér. Ég gat því borað draslið út, boraði svo 10 mm gat í gegnum púðann sjálfan og setti svo bara bolta í gegnum þetta. Það virkaði flott.
Ég er búinn að panta mér poly sett frá Þýskalandi sem er einmitt "heilboltað" bara í gegn. Það mun koma til með að valda smá titringi en ég ríf þetta þá ekki í sundur svona
