Jónas wrote:
Álver eru alveg framtíðinn, annað er bara hippa-tal.
Þótt verð á áli sé lágt í dag mun það hækka í framtíðinni þar sem að eftirspurn eftir áli á bara eftir að aukast í framtíðinni.
Hinsvegar er alveg rétt að það er bull að bara erlendir aðilar eigi þau.
Það er þessa ógagnrýna hugsun sem olli bankahruninu! Ef menn eru það heimskir/kærulausir að trúa á svona lagað án þess að velta hlutunum fyrir sér á gagnrýnan hátt þá eiga þeir skilið að búa í fátæku landi (svona næstum því).
Eitt dæmi um kárahnjúkavirkjun sem sýnir að Landsvirkjun vissi að hún væri ekki svo sniðug:
""Kárahnjúkavirkjun er í raun eyland í raforkukerfinu..."segir í langri upptalningu lögfræðings Landsvirkjunar um það hve erfið og áhættusöm framkvæmd hún sé.
Þessi makalausa greinargerð var send þeim landeigendum sem héldu að þeir gætu orðið milljarðamæringar vegna dýrmætra vatnsréttinda.
Löng upptalning vankanta virkjunarinn var send landeigendunum til þess að þeir sæu að allir þessir ágallar "rýrðu meðal annars gildi vatnsréttinda við Kárahnjúka" eins og það var orðað til þess að koma landeigendunum niður á jörðina.
Jafnvel hinir bjartsýnilegu útreikningar á arðsemi stóðust ekki kröfur sem einkafyrirtæki gera og því varð með margvíslegum ívilnunum og ríkisábyrgð að koma "áhættusamri jaðarframkvæmd" á koppinn eins og hún er kölluð í greinargerð lögfræðings Landsvirkjunar. "
Tekið af
http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/759141/Eitt dæmi um lygina varðandi fjölda stóriðjustarfa:
"Nú er það svo að það eru "afleidd störf" af öllum störfum, að vísu mismunandi hátt hlutfall. Ef talsmenn allra atvinnugreinanna færu að reikna á sama hátt og stóriðjusinnarnir og bættu við sama hlutfalli í "afleiddum störfum", - og birtu síðan tölur sínar í fyrirsögnum í blöðum kæmi í ljós í dæminu hér á undan að 30% störfuðu við landbúnað, 90% við iðnað, 120% við þjónustu og 75% við ferðaþjónustu eða alls 315% !."
http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/751838/Stóriðjan skilar mjög fáum störfum per MW sbr:
http://www.m5.is/?gluggi=frett&id=68755"
Eitt starf verður til í áliðnaði á hvert megawatt (MW) raforku og er þetta minna en við framleiðslu á járnblendi, við kísilvinnslu eða í netþjónabúi. Þetta kemur fram í svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn Ármanns Kr. Ólafssonar alþingismanns. Þar kemur einnig fram að störf í áliðnaði eru mun fleiri en önnur störf í stóriðju hér á landi, hvort sem litið er til þeirra sem nú eru til eða sem eru í undirbúningi eða á hugmyndastigi.
Í álverunum hér á landi starfa 1385 manns og bein störf eru 1,0 á MW. Bein og afleidd störf samanlagt eru hins vegar 3,0 á MW.
Í járnblendinu starfa 200 manns og eru bein störf 1,7 á MW, en bein og afleidd eru 4,2 á MW.
Þrjú erlend fyrirtæki hafa sýnt áhuga á kísilvinnslu og þar yrðu beinu störfin 90-350 eftir því hvert þeirra á í hlut. Bein störf á MW yrðu 1,5-3,5, en bein og afleidd 4,5-12,3.
Þau netþjónabú sem verið hafa í undirbúningi hér á landi gætu orðið vinnustaðir fyrir 15-60 starfsmenn. Bein störf á MW gætu orðið 1,2-2,4 en bein og afleidd 2,4-4,8. Í svari iðnaðarráðherra segir einnig að dæmi sé um það frá Bandaríkjunum að gagnaver útvegi 4,8-6,5 störf á MW, en starfsmennirnir séu ýmist í þjónustu eigenda gagnaveranna eða viðskiptavina. Erfitt sé að áætla fjölda starfsmanna í hugsanlegum gagnaverum á Íslandi með nákvæmni."
_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur

--