Ég á BMW 316i E36 og það er alltaf kveikt á loftpúðaljósinu. Hvað í fjáranum gæti verið að? Loftpúðarnir eru enn á sínum stað og hafa aldrei sprúngið út. Allar upplýsingar vel þegnar.
Þú verður að láta lesa af honum, því að jafnvel þó að bilunin hafi bara komið fram í eina sekúndu, þá kveikir tölvan ljósið og það slökknar ekkert fyrr en að bilunarmeldingunni er eytt út úr tölvunni með aflestrartölvu.
Ertu búinn að vera að taka eitthvað úr sambandi í sætum undafarið ? Hjá mér fóru þessi ljós af stað þegar að ég tók sætin úr bílnum. BogL sögðu mér að það tæki hálftíma að laga þetta og myndi reiknast á verkstæðisverði. TB löguðu þetta fyrir mig fyrir klink í samanburði við það sem þetta hefði kostað hjá bogL.