Þetta lítur allt mjög vel út hjá Aroni.
Gleymdi lappanum og lóðbolta + hitabyssu, þannig að dagurinn fór þá frekar í að fara yfir allt sem gæti tafið gangsetningu.
Á morgun hafa menn þá sín verk að afgreiða. Enn sem betur fer bara smotterí sem þarf að skoða
Fann uppá smá vírasparnaði þannig að það verður mögulega bara wideband og spíssa vírum bætt við í vélarrýmið.
Það verður algjörlega sett í gang á morgun og byrjað að mappa og boostið svo hækkað eftir því.
Þá kemur í ljós hvort að MSD Blaster keflið sé betra enn original Bosch kefli og hversu langt yfir 1bar er hægt að komast.
3,25 drifið er algjörlega að meika það í bílnum hjá Einari, þetta er algjör snilld að hafa svona langt drif með boosti.
2gírinn er bara búinn að umturnast.
Svo held ég að það hafi mjakast aðeins í verkefninu hjá Jóni Ragnari í dag
Vonum bara að tölvan sé ekki kappút.