jæja ég var að fá mér annað "verkefni" bíl til að druslast á um meðan Mustang er í viðgerð..
fékk þennan bíl á mjöög góðum prís. ef maður talar í tölum þá hefur hann verið að kosta svona 45þús kall.
skipti á honum og 3ára gömlu 42" medion lcd sjónvarpi sem kostaði nytt 149þus..

en um er að ræða Jeep Grand Cherokee Ltd. árgerð 1996. ótrulega heill og fallegur bíll.
hann er með rafmagn í öllu. leðri. viðarinnréttingu, dökkum rúðum svo eitthvað sé nefnt..
hann er ekinn 205þús km og er með kílometramæli.
hann er fluttur inn frá kanada einhvertiman snemma á æfiferli sinum
því miður er þessi bara með L6 High output (192Hp) motornum en ekki V8 218hp eins og hinir 2cherokee-arnir sem ég hef átt. en ég er samt sáttur með jepplinginn
hann er silfurgrár með ljósblárri perlu. og breytir því um lit í ákveðnu ljósi..
þetta mun vera þriðji Grandinn minn, og annar Limited grandinn minn

þetta er flottur beater á meðan Mukkinn er í vetradvala eða inn í skúr í yfirhalningu

jæja herna eru myndir.. ég er buinn að útvega mér bretti, huddi, ljósum vinstra megin. og jú stuðara.. en restin verður rétt og slegin til

nema efsti partur ljósafestingarinar.. ég bora hana úr bilnum sem ég fæ partana úr..
en anyways. herna eru myndir af dallinum og eitthvað


svo innréttingin. eins og ny



svo klessufjandinn. en þetta er ekki allvarlegt



þegar ég fékk bílinn þá var hann numerslaus. og buinn að standa óhreifður í 13mánuði fyrir utan blokk herna á selfossi..
svo þegar ég fékk numerin á hann þá komst ég að því að allar bremsudælur voru fastar þannig að ég tók hann inn og liðkaði þær allar upp..
en hann var augljóslega á nyjum klossum allan hringin.. nuna bremsar dallurinn vel og allt virkar.
abs ljósið hætti að loga og það fór að virka rétt..
svo var ruðuþurkuarmurinn ryðgaður fastur

sem er dáldið bjánalegt þar sem brakketið sjálft er úr plasti

en eftir einn brúsa af wd40 og hálftima barðsmíðar með töng þá liðkaðist það allt upp og ruðuþurkurnar eru farnar að virka aftur. en letingin er bilaður..
ég þarf að skipta um motorinn seinna..
herna er mynd af ryðgaða plast arminum


og motorinn

ég tel mig hafa gert fokkalega góðkaup þar sem þetta er fínn bíll
okkur vantaði einmitt ódyran bíl til að þjösnast á á meðan mustanginn er í viðgerð

ekki bíll að verrigerðini

er einmitt buinn að eiga 2 áður..
Jeppann sem ég keyrði niður (ekki einn, heldur tvo) ljósastaura á.
hann var Laredo, en samt með 5,2l V8 motor.

Raggi Róberts gerði hann upp ótrulegt en satt. Nuna er hann þektur sem Vibe/audiobahn Cherokee-inn.
svo átti ég þennan Limited sem ég seldi einhverjum jeppa kalli og hann bretti honum í drasl

á því miður ekki stærri mynd

7
takk fyrir mig í bili og njótið..
kem með uppdate þegar billinn verður komin með nyjan frammenda
