SteiniDJ wrote:Ég vil ekki stela þræðinum, en kannski get ég hjálpað ef ég fæ svar við þessu. Hvað er bón grisja?

Þetta er svona skársta myndin sem ég fann til að sýna hvernig grisja þetta er.
Þetta er yfirleitt úr bómull.
Bæði hægt að fá í rúllum og niðurskorinn í klúta, yfirleitt dýrara ef búið er að skera niður.
Er sirka 30 cm breitt í rúllu og ég klippi niður í 30-40 cm langa klúta, brýt þá saman og bæði bóna og þurka bónið af með þeim. Svo hendir maður þessu bara eftir notkun.
Ég nota yfirleitt svona 3-5 niðurklippta búta, fer eftir stærð á ökutækinu og hversu vel maður er að vanda sig.
Ég nota þetta bara eins og aðrir nota twist.
Sumir vilja meina að þetta fari betur með lakkið en að nota twist, ég nota þetta aðalega vegna þess að mér finnst þetta vera mun þægilegra en að nota twistinn.
Ég hef allavega ekki notað twist síðan ég kynnist því að nota svona grisju, sem eru svona 6-7 ár.