- 1. Gírkassabracketið brotnaði en var lagað í Áliðjunni
2. Siggi snillingur í Mótorstillingu svissaði gormunum og lagaði 5.gírs stýringuna fyrir mig svo kassinn er mega sweet núna
3. Það vantaði smá á kassann hjá mér og ég mátti fara þræði öll útíbú B&L að útvega MTF LT2 en Jökull meistari reddaði mér að lokum.
4. Einn boltinn sem heldur gírkassabracketinu losnaði ekki og mátti ég skera hann með slípirokk. Svo þurfti ég að smíða nýja festingu í staðinn (JB-Weld 4tw)
5. Það gekk ekki að koma startaranum aftur á svo ég þurfti að rífa soggreinina frá (bara gaman, fullt að skemmtilegum hosum) því snartarinn gekk ekki á

6. Það þurfti að snitta gengjurnar og bora út stýringuna (Ingi gerði það fyrir mig) startaranum
7. Það var mikið gaman að koma soggreininni aftur en ég á góða unnustu sem hjálpar kallinum sínum

Hún vildi btw láta taka mynd af sér til sönnunar að hún hefði óhreinkað á sér hendurnar
Núna situr svo kallinn tilbúinn til skoðunar og bíður æstur eftir því að fara að mökka brjálað

Roadster Ready to Run
Jæja nú er bara að græja næsta bíl



