Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby Aron Fridrik » Wed 11. Mar 2009 17:37

jebb.. inside maður með grudge.. topp maður i svona dæmi :)
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 13. Mar 2009 05:35

Fyndið hvað kreppan/hrunið breytir öllu - sjallar komnir í lopapeysur fyrir kosningar :lol:

Image
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby ValliFudd » Mon 16. Mar 2009 16:18

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/ ... 6_prosent/

Krónan veiktist um 2,6%

Eitthvað lasin greyið..Image
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby krullih » Mon 16. Mar 2009 17:43

Maður er að vona að hún haldi sér nú eitthvað stabílri á komandi vikum / mánuðum (á maður að þora að hugsa svo langt fram í tímann?)

Hef ennþá lang mestar áhyggjur af því hvað IMF ætlar að 'skorða' okkur af varðandi ákvaðranir og jafnvel óopinberar kröfur í framtíðinni!
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Re: Krónan ...

Postby ValliFudd » Mon 16. Mar 2009 18:22

Verst af öllu

Höfundur lags: Evert Taube
Höfundur texta: Jónas Friðrik
Flytjandi: Ríó Tríó

C F
Verst af öllu er í heimi
G C
einn að búa í Reykjavík.
F
Kúldrast uppi á kvistherbergi
G C
í kulda og hugsa um pólitík.
G
Vanta félagsskap og finnast
C
fólkið líta niður á þig.
F
Elda sjálfur, vita að veslings
G C
vömbin er að gefa sig.
F
Troðfullt allt af tómum flöskum.
G C
Táfýlan að drepa þig.

C F
Laumast heim eitt kvöld með konu,
G C
kanna hennar innstu rök.
F
Æfa fyrir neðan nafla
G C
náttúrunnar glímutök.
G
Losa það sem þarf að losa.
C
Þukla eins og venjan er.
F
Leikinn við að ljúga og brosa,
G C
látast elska verða ber.
F
Sýna allar æfingarnar.
G C
Eina kvöldstund gleyma sér.

C F
Vita að þegar vaknar aftur
G C
verður allt jafn tómt sem fyrr.
F
Konan sér í fötin flýtir,
G C
fer í burtu. Lokast dyr.
G
Þú ert einn í þínu rusli,
C
þessi stund er óðar gleymd.
F
Sólin inn um gluggann gægist,
G C
glottir yfir þinni eymd.
F
Þessi nótt úr þínum huga
G C
þurrkuð út og mun ei geymd.

C F
Þannig einn af öðrum líður
G C
ógnarlangur dagur hjá.
F
Glingrað oft við öl um nætur,
G C
einsemd þannig gleyma má.
G
Þyrfti víst að þvo og hreinsa,
C
þyrfti margt að gera við,
F
ekkert þér úr verki verður,
G C
vesöldin á hvora hlið.
F
Ef þú gætir flutt þú færir.
G C
Ferlegt mjög er ástandið.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Mon 16. Mar 2009 19:50

Ég myndi amk ekki treysta um of á að hún myndi styrkjast. Það sem er að veikja krónuna núna er skitinn 5ma vaxtagreiðsla af ríkisskuldabréfum sem útlendingarnir eru að leysa til sín.

Það þarf nánast ekkert flæði til að henda genginu til og frá.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby ValliFudd » Tue 24. Mar 2009 15:44

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item257081/

Skýrslan

Febrúar 2008
Niðurstaðan er þessi: Það er ljóst að íslensku bankarnir, Kaupþing og Glitnir alveg sérstaklega, hafa stefnt sér og það sem verra er, íslensku fjármálalífi, í mikla hættu, jafnvel í hreinar ógöngur, með ábyrgðarlaustri framgöngu á undanförnum árum. Hættulegt er að hafast ekkert að í þeirri von að markaðir opnist óvænt og alur vandi verði þá úr sögunni. Nauðsynlegt er að hefjast þegar handa við að vinda ofan af stöðunni svo hún verði ekki óleysanleg. Ekki er hægt að útiloka að miklu fyrr rætist úr markaðsaðstæðum og aðgengi að fjármagni en nú er talið. Ekkert bendir þó enn til þess og ef menn láta sér nægja að lifa í voninni verður of seint að bregðast við þegar ljóst verður að vonin rætist ekki.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby gstuning » Tue 24. Mar 2009 17:10

Talkin about turning a blind eye.

Kemur eitthvað svona fram hjá þessum háttsettustu þá vel fyrir kreppuna enn akkúrat ekki neitt er gert?
Ef eitthvað er þá er snúið á hinn veginn og lætin sett í 18bláa.

Nice.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Krónan ...

Postby iar » Tue 24. Mar 2009 19:25

Fínn punktur hjá Marinó G. Njálssyni um þessa skýrslu/minnisblað Seðlabankans:

http://marinogn.blog.is/blog/marinogn/entry/835932/

Marinó G. Njálsson wrote:Í mínum huga, þá er þetta minnisblað meiri áfellisdómur yfir Seðlabankanum en syndaaflausn. Raunar vil ég ganga svo langt að segja, að með þeim upplýsingum sem þar koma fram (hafi þær ekki verið á vitorði manna í smærri fjármálafyrirtækjum) þá myndar minnisblaðið góðan grunn að skaðabótamáli fyrir smærri fjármálafyrirtæki á hendur Seðlabankanum. Ástæðan er einföld: Seðlabankinn bjó yfir upplýsingum um bankana þrjá sem bentu leynt og ljóst til þess að minnst tveir þeirra væru svo illa staddir að þeim yrði vart bjargað.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: Krónan ...

Postby grettir » Wed 25. Mar 2009 13:12

Þessi Marínó hefur skrifað nokkra áhugaverða pistla í kjölfar hrunsins.

Hann skrifaði til dæmis pistil um þróun stýrivaxta og verðbólgu á einhverju ákveðnu tímabili (sem ég finn ekki núna í fljótu bragði) en í honum mátti sjá að stýrivextir voru alltaf hækkaðir, þrátt fyrir að verðbólga lækkaði og þegar verst lét var munur á stýrivöxtum og verðbólgu í kringum 9% !

Það er ekki skrýtið að hingað hafi streymt nánast ótakmarkað fjármagn í jöklabréf og önnur vaxtamunaviðskipti.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Wed 25. Mar 2009 13:49

í ljósi nýjustu verðbólgutalna er munurinn á verðbólgu og stýrivöxtum núna mun hærri.

Þetta fer auðvitað eftir hvaða tímabil er notað sem grundvöllur verðbólgu en það er ekkert vit í að horfa 12 mánuði aftur í tíman. Ef miðað er við 3 mán er munurinn sennilega í kringum 15% og miðað við núverandi mánuð er munurinn um 25%
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby ValliFudd » Mon 06. Apr 2009 01:26

Á óbeint heima hér.... En umtalaður Jóhannes Sigfússon er að ég held bróðir Steingríms J. Sigfússonar :lol:

http://img147.imageshack.us/img147/5744/negriqf0.jpg
Last edited by ValliFudd on Mon 06. Apr 2009 17:02, edited 1 time in total.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby ValliFudd » Mon 06. Apr 2009 17:01

Jæja, óverðtryggð lán hjá Landsbankanum...

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/st ... tem259305/
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Viggóhelgi » Tue 07. Apr 2009 18:55

ég græt eftir fréttir dagsins! :S
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Tue 07. Apr 2009 18:57

Viggóhelgi wrote:ég græt eftir fréttir dagsins! :S


Styttist í brottför..... :oops:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests