Fátt fer eins mikið í taugarnar á mér og þetta krass.
Merkilegt hvað óþroskaðir hálfvitar leggja á sig til að koma þessum viðbjóðslegu töggum upp á merkilega staði.
Ekki eru þetta bara eignaspjöll heldur aumingjaskapur að þurfa að eyðileggja eigur fólks og fyrirtækja með þessu skíta gjörning til að koma nafninu sínu á framfæri

, yeye,
Menn hafa gengið svo langt að tagga bíla og hús fólks , þvílíka fokking hugsunarleysið.
Það sem verður oftast fyrir barðinu á þessum vitleysingum eru eigur borga og ríkis , kostnaður við þrif á þessu lendir því á hinum almennaborgara og kæmi mér ekki á óvart að kostnaður við þetta hjá Reykjavíkurborg hlaupi á 7 stafa tölum á ársgrundvelli.
Kannski er þetta eins með þennan lýð og okkur bílaáhugamennina , kannski vantar svæði fyrir þetta. En þar með er spennan farin úr þessu. Menn fá væntanlega lítið útur því að tagga sama portið oft.