Mér datt í hug að henda inn á þráðinn link af myndum sem ég tók í Miðjuferð sem var farin 6-7 mar síðastliðinn.
Ég fór ekki á mínum bíl í þessa ferð, fór sem farþegi í Land Rover á 38"

Ferðin var alveg glæsileg í alla staði og mörg aaansi áhugaverð tæki mættu á svæðið.
Við Eyfirðingar gistum í Laugafelli á föstudagskvöldinu og mættum svo á miðjuna um hádegi á laugardegi. Það bættist í hópinn af bílum allann daginn og voru þeir eflaust orðnir 200+ þegar mest var.
Áhugaverðasta græjan var klárlega 6 hjóla RAM hjá Gunna í Dekkjahöllinni eða hvað hún heitir hér fyrir norðan. Þetta var fyrsta ferðin á bílnum hjá kallinum eftir að hann breytti honum svona.

Ég sá alla vega ekkert eftir að hafa ekki farið á mínum bíl, maður var alveg í fullri vinnu að taka myndir og glápa á alla hina bílana að blasta útum allt. Fínasta skemmtun líka að geta bara tekið því rólega í farþegasætinu og sötrað öl
Linkur á albúmið hjá mér:
http://ferdalangar.123.is/album/default.aspx?aid=139404