Jæja krakkar er ekki kominnn tími á nýja færslu í þennan blessaða þráð, ég meina hann er kominn aftur á síðu fimm
Ég og Danni svellkaldi skutumst í bæinn í dag að ná í sjöuna mína en eins og menn hafa kannski tekið eftir þá hefur hún dvalið uppá Grjóthálsi 1 í dáááágóðan tíma.
Hér erum við búnir að henda bílnum uppá þessa EÐAL kerru sem tók skotstund eftir að ég hafði sýnt spilinu á kerrunni smá umhyggju með B.F.H. Annars tók það okkur dágóðan tíma að komast inní bílinn en það tókst á endanum eftir að góðhjartaðir verkstæðismenn B&L aðstoðuðu okkur aðeins og er ég mjög þakklátur fyrir það

Danni missti sig alveg i gleðinni þegar að bíllinn var loksins kominn uppá kerruna

Núna verður Alpinan alveg ein út í horni með brostið hjarta,,,,,,, greyið.

Hér erum við svo komnir í Keflavíkina.........



Hér er hún komin af kerrunni, alveg haugskítug eftir dvölina hjá B&L mönnum.

Þjöppumælingin hjá B&L á köldum mótor......

.....og svo á heitum mótor.

Svo er planið fyrir næstu helgi að byrja á því að rífa pústið og drifskaftið undan bílnum, svo sjáum við til hvað tíminn mun leyfa uppá það hvort að eitthvað meira verði gert þá helgina.
Over and out
