Það væri samt í raun best að gera þetta í skrefum,
byrja á einu sem er að setja MAF conversion og piggyback
50-55þús með ísetningu, það gefur 5-15hö yfir sviðið, einn félagi sem var að klára svona var mjög sáttur við sitt eftir að hann skipti út AFM fyrir MAF, einnig á sama tíma að skipta yfir í 335i spíssa,
hö : 180-195, geðveikt misjafnt eftir bílum,
Svo er það að skipta yfir í °290 ása og með því ventla gorma + retainers og nýja rockerarma, 150þús með ísetningu myndi ég giska á getur vel verið minna fer eftir hver setur í,
hö með smt6 stillingu og kveikju stillingu : 190-200hö@6400 þar sem að hann slær út,
SMT6 getur séð um kveikjuna alfarið en það er ekki gott mál að stilla allt frá byrjun og tekur tíma (en hægt)
flækjur : 30-50þús held ég að væri fínt verð fyrir sérsmíðað
Total komið í 205-210hö@6400 sem að hann slær út
og total kostnaður kominn í 250þúsund
Plana hedd og porta : ??? veit ekki með kostnað, líklega best að gera þegar vélin er gerð upp,
hö : solid 210hö
svo er það að gera smt6 að standalone ignition og þá þarf að stilla kveikjuna frá byrjun en..
Það gefur manni nýtt rev limit þ.e hvað sem að manni langar,7000rpm, með max power í 6600-6800 líklega, og þá væri það 215-225hö,
kostnaður um 250-300þús,
700kall og þú getur keypt 6throttle body dæmið og standalone, best þá að skipta strax í standalone kerfi og tjúna svo frá því, standalone kostar um 100þúsund kall og getur séð um 8cyl til 13000rpms eitthvað svoleiðis, með bunch af útgöngum og hægt að gera mjög margt í því,
Í raun gættiru mögulega sloppið með 500kall og 250hö, en líklega ekki
700kall og í raun ekkert eftir að gera nema að snúa meira og auka þjöppu, en þú gætir þá reddað þér 2.7 cranki og byrjað þaðan að tjúna eftir að þú ert búinn að kaupa standalone og BMP 6tb dótið,
700kall leiðinn,
2.7 crank
með stimplum og stöngum,
aukin þjappa, 11.3 mest myndi ég ráðleggja og 99bensín minnst
setja á hann standalone og 6tb
stilla það allt samann
og setja svo í hann ása og rockerma og títanium ventla gorma og retainers,
Sko ég held að fyrir NA 2.7 sem er vel opin að 260nm sé í raun maxið sem að vélin getur meikað, það við þurfum að gera er að færa það ofar og ofar til að meika meira power
Við ákveðum max hö tölu : 100hp/líter
= 270hö
svo þurfum við að finna út hversu mikið þarf að snúa vélinni ef hún þarf að meika mest 260nm og framleiða 270hö en ef við gerum hana þannig að hún sé max hö og max tog í sama snúning þá er ekki neitt low end eða mid range, þess vegna þurfum við að fá 260nm neðar heldur en max power, hversu mikið neðar fer eftir hvað við viljum úr vélinni,
ég myndi segja að fyrir 12ventla sexu með 100hp/líter þá ætti powerbandið að vera mest 1500rpms, og því þurfum við að sjá hvort að það sé í raun hægt, sem þýðir að max tog er 1500rpm fyrir neðan max hö
sem væru þá líklega XXXnm við hærri snúning ef við gefum okkur það bara,
og við fáum út þetta miðað við það að við setjum það mark að reyna að fá 270hp við 7500rpm (257nm)
að þetta lítur ekki nógu vel út,
þá væri powerbandið frá 7200-7500 sem við getum ekki notað
þá verður að snúa meira til að fá lengra powerband,
270hp við 8000rpm (241nm)
max tog væri líklega 260nm við 7600 gæti ég ýmindað mér, en ég get það ekki því að mig vantar eitthvað til að bera samann við,
ef einhver er með tog og hö snúninga og tölur yfir M30 race vél þá væri það vel þegið,
En mér sýnist að mögulega er 3.0 lítra stroker kit bara málið fyrir þig, setja á það 6tb og standalone og þa´ertu með eitthvað til að hrópa húrra yfir, 270hö við 6500 og nóg af togi í neðri, ekki skipt um ása til að reyna að viðhalda low end vinnu,