Samskipti við bílasölur

Hér skal spjalla um BMW.

Samskipti við bílasölur

Postby iar » Tue 16. Dec 2003 22:37

Hafið þið einhverja reynslu af tölvupóstssamskiptum við bílasölur og aðra svipaða aðila?

Í síðustu viku sendi ég nokkrum bílasölum fyrirspurnir í tölvupósti og hef enn engin svör fengið. Svipuðu hef ég lent í varðandi ónefnt bílaumboð og amk. tvær varahlutaverslanir hér í Rvík.

Hafa þessi fyrirtæki engan áhuga á samskiptum á þennan máta? Er t.d. bilasolur.is vefurinn eitthvað sem bílasölur hafa engan áhuga á að þróa meira og auðvelda viðskiptavinum að eiga viðskipti við þá eða er þetta bara einhver tæknifóbía og vitleysa? Það er auðvitað synd því maður er jú að vinna 9-5 og því lítill tími til að standa í hlaupum og hringingum út um allan bæ.

Svo er auðvitað hinn möguleikinn kannski er ég bara óæskilegur viðskiptavinur sem þeir vilja ekki einu sinni þyggja pening frá. :roll: Minn "tendens" er allavega að beina viðskiptum mínum annað ef viðmótið er ekki í lagi og í þessum tilfellum er viðmótið alls ekkert.

Hvernig er ykkar reynsla, eitthvað svipað eða er þetta bara ég? :?

PS: Nú hef ég allt aðra og bara mjög góða reynslu af samskiptum við erlend fyrirtæki, bæði t.d. bmwspecialisten og aðila á ebay.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby ta » Tue 16. Dec 2003 23:30

ég sendi einni bílasölu fyrirspurn um daginn, en fékk ekkert
svar. síðan eru liðnar 5 vikur.
það er einsog þeir hafi engan áhuga á viðskiptum.

Annars heyrði ég frá öðrum bílasala, hann sagði að sjaldnast
kæmi neitt útúr fyrirspurnum sem kæmu í gegnum netið,
það væri hans reynsla.
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby iar » Tue 16. Dec 2003 23:34

ta wrote:Annars heyrði ég frá öðrum bílasala, hann sagði að sjaldnast
kæmi neitt útúr fyrirspurnum sem kæmu í gegnum netið,
það væri hans reynsla.


Jújú, það er auðvitað hin hliðin á þessu en er þá ekki bara málið að sleppa því að auglýsa netföngin á heimasíðunni? Láta bara símanúmer, staðsetningu og opnunartíma duga? :wink:
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby ta » Tue 16. Dec 2003 23:40

iar wrote:
ta wrote:Annars heyrði ég frá öðrum bílasala, hann sagði að sjaldnast
kæmi neitt útúr fyrirspurnum sem kæmu í gegnum netið,
það væri hans reynsla.


Jújú, það er auðvitað hin hliðin á þessu en er þá ekki bara málið að sleppa því að auglýsa netföngin á heimasíðunni? Láta bara símanúmer, staðsetningu og opnunartíma duga? :wink:


mér finnst að þeir gætu sagt "komdu bara, við skoðum þetta
eða hringdu" á meilinum ef ekkert annað.
þeir sita nú við tölvurnar mest allann daginn.
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby iar » Tue 16. Dec 2003 23:44

ta wrote:mér finnst að þeir gætu sagt "komdu bara, við skoðum þetta
eða hringdu" á meilinum ef ekkert annað.
þeir sita nú við tölvurnar mest allann daginn.


Einmitt! Það er akkúrat málið, það þarf ekki meira til að koma í veg fyrir pirring.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Svezel » Tue 16. Dec 2003 23:54

Ég sendi sölu tölvupóst um helgina og hún hringdi í mig strax á mánudagsmorgun, ekkert nema gott um þá sölu að segja.

Aftur á móti hef ég ekki enn fengið svar við fyrispurn sem ég sendi Bílanaust í október :?
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Benzari » Wed 17. Dec 2003 01:45

Aldrei fengið svar við fyrirspurn í gegnum e-mail hjá bílasölu. Held svei mér þá að það sé best að gera þetta sjálfur.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby jens » Wed 17. Dec 2003 08:20

Sendi nokkrar fyrirspurnir um daginn út af leit minni að 4ds E30 bíl og fékk fullt af svörum þó þau væru öll neikvæð.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby bebecar » Wed 17. Dec 2003 08:55

Ég nota þetta talsvert mikið og fæ nánast alltaf svar, ég man reyndar ekki eftir því að hafa ekki fengið svar. En oft tekur það nú nokkra daga og oftast er augljóst að þeir eru að fara yfir þetta í lok dags.

En svo er það líka annað mál að ég held mig við ákveðnar bílasölur þar sem ég er sáttur við þjónustuna. Bílfang (Trausti) hefur alltaf svarað mér og reynst vel fyrir utan einn gaur sem er þar núna og vildi frekar spjalla við vin í símann en selja félaga mínum bíl, mátti ekki einu sinni vera að því að taka tólið frá eyranu þegar við skiluðum lyklunum.
Litla bílasalan hefur reynst mér vel (Ási) og hann vinnur í málum. Bílasölurnar á Akureyri og Selfossi eru góðar líka.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunni » Wed 17. Dec 2003 09:35

Ég er sammála með Litlu bílasöluna. Það er snilldarbílasala. Gaurarnir þar hafa virkilega eitthvað vit á bílum og vita hvað þeir eru að segja! Tveir þumlar upp fyrir Litlu!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bebecar » Wed 17. Dec 2003 10:27

:clap:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

..

Postby Wolf » Thu 18. Dec 2003 01:32

Alveg sammála síðustu ræðumönnum, hef átt viðskipti við bæði Trausta og Ása, og hef ekkert nema gott um þá að segja. En svo eru þó nokkrir leiðinlegir guttar sem hafa engann áhuga á bílaviðskiptum, í þessu sem ættu að snúa sér að einhverju öðru....
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby ta » Thu 18. Dec 2003 21:27

sammála hér, Trausti er traustur
oftast mjög góða reynslu.
vil nefna Toyota líka, tóku fulla ábyrgð
á 95 opel omega, sem bilaði nokkuð.
alveg frábær, Jón Vikar
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests