by Danni » Mon 23. Feb 2009 11:24
"Eins og sjá má á myndinni gekk él yfir þegar kappaksturinn átti sér stað og þarna skammt frá voru björgunarsveitarmenn að fergja þak sem var að fjúka í sterkum vindi."
Ég geri ráð fyrir því að ljósmyndarinn hafi verið að mynda þetta. Þetta getur alveg passað þar sem það er nokkuð af ókláruðum húsum þarna þar sem þessi vegur er.
Það kemur líka fram í fréttinni að það sást til þeirra spyrna í Helguvík hálftíma áður en veltan varð. Ætli það hafi ekki einfaldlega verið hringt í ljósmyndarann og hann hafi farið á staðinn þar sem veltan varð.
En varðandi þessa veltu, þá hef ég séð hvernig þessi drengur keyrði bílinn og hreynskilnislega sagt þá kemur þetta mér akkurat ekki neitt á óvart. Vonandi lærði hann bara eitthvað á þessu.
Danni
'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi