Ég held að þessi græni litur sé ekki neitt bundinn við ameríku, fullt af þessu í evrópu líka. Mér finnst hann ágætur - myndi aldrei kaupa hann beint úr umboði en....
Þessi litur á leðrinu og því dóti er alveg o.k. en passar illa við beinskiptan 540i ekki nógu kappalegt!
Í innréttingarmálum þá er ég að horfa í eitthvað svona:

nema sportsæti, mögulega yrði tau innrétting þá ljós, alltaf veikur fyrir tau sportsætum í e34.
Ég er alveg sammála þessum með contrast pælingum, gerir rosalega mikið fyrir þetta að vera með svart mælaborð og efsta hlutann á hurðaspjöldunum svartan.
Það voru ameríkustærðarnúmer á bílnum, það sést á stuðaranum, þessvegna er ekki búið að skrúfa plötuna á að framan, hún er enn í glugganum. Það þarf að fá svarta miðjuplastið af euro-bíl.
Ég held að vandamálið með skiptinguna í þessum bíl sé ekki hefðbundið m60b40 case. Þetta gerist samhliða því að skipt er um vél í bílnum, skiptingin er í limp mode og það er e-ð sem veldur því, ég ætla að reyna að laga skiptinguna áður en ég tek hana úr eða finna út hvað veldur a.m.k.
Svo er planið að taka e34 m5 í spyrnu, ég á 2 svona gírkassa og get því rótað almennilega í gírunum án þess að lenda í stórum vandræðum....annað en m5 spaðarnir
Keypti auka kassann á €100 á mjög gömlu og góðu gengi!!! Sleppi bara einni bæjarferð og þá er maður kominn með það.
En hvort það tekst það verður tíminn einn að leiða í ljós....ef það tekst þá er klárlega farinn skynjari í m5'inum
