Jæja ég er nú ekki vanur að segja eitthvað hér án þess að það sé tilgangur í því
En ég ætla nú samt að pósta inn myndum af e23 þarsem ég er svo ánægður við að vera búinn að basla í allanótt við að henda hjólalausu hræji úr skúrnum og koma e23 inn og byrja aðeins á honum!
Svona til að byrja með.



Ég byrjaði á að labba einn myndahring í kringum bílinn, tók afturljósin af og mátaði önnur, tjakkaði hann upp og setti undir hann búkka og hófst svo handa.
Þegar við drógum hann stóð hann fastur í bremsu fyrir utan húsið hjá mér og neitaði að fara..


Enda bremsurnar illa ljótar
Ég byrjaði að taka pústið undan.

Allt vel riðgað þarna og þegar ég náði pústinu undan var það ónýtt[enda ekki við öðru að búast]


Svo var það bara að taka sætin úr.


Sætin sem voru í honum.

Og svo þegar það var búið að taka teppið leit þetta svona út í bílnum!





Svo var byrjað að pússa og gera tilbúið fyrir suðu.





Svona leit þetta út þegar ég skildi við bílinn, á eftir að fínesera aðeins og skera út fyrir suðu!
Nennti ekki að hanga lengur þar sem ég er ekki búinn að sofa í 33 tíma.
Vona að ykkur líki þessar myndir

-----------------------------------------------------------------------------------------
Ég ætlaði nú að pósta þessu inn í gær, en það var eitthvað vesen með að koma myndonum á netið.
En já hérna eru s.s. myndir af því sem við Ási gerðum í gær[það var nú ekki mikið samt sem áður]
Við byrjuðum á því að taka húdd og frammenda bílsins af.



Ási að pússa aðeins, þannig að þetta leit svona út.



Það hefur eitthver bara sett kitt yfir riðið og það nátturulega riðgað mikið meira og hraðar undir því
En svo skiptum við um vatnslás í bílnum bara svona á meðan við fengum okkur sígarettu.
Svona leit vatnslásinn út sem átti að vera fastur opinn í bílnum.


Lítið eftir af honum svosem.
Svo svona í endan þá ákvöðum við að prufa setja hann í gang.
Við beintengdum háspennukeflið í geiminn en það endaði nú bara með ósköpum


-------------------------------------------------------------------------------------------------
Jæja ég fór aðeins í skúrinn í dagm, byrjaði á því að taka smá til.
En þarsem þessar bremsur eru búnar að freista mín svo ákvað ég að byrja aðeins á þeim.
Ég tók bremsudæluna af og skoðaði hana, ég ætla bara að panta nýja í hann að aftan, það er allt fínt að framan.



Hálf ónýtt eiginlega bara, en ég skelli í hann nýju núna fljótlega
Svo var það bara haldið áfram með riðið, tók ekki mjög margar myndir.


Kláraði að pússa allt farþegamegin og skera aðeins úr fyrir suðu.
Þegar það var búið byrjaði ég aðeins á golfinu hinumegin.

Þannig það leit svona út.
Svo henti ég mér bara aftur í hina hliðina á bílnum og tók hjólaskálina.

Það var nú reyndar svona meira Ási sem gerði þetta
Ég tók því bara rólega í kvöld en helgin er frammundan og er planið að helga sér bílnum bara þá
