Þegar ég sný lyklinum kemur bara smá tíst og startarinn snýr ekki. Það er nýr geymir í bílnum, skórnir og pólar eru hreinir og fínir svo þetta virðist ekki vera sambandsleysi þaðan frá.
Er eitthvað öryggi fyrir startarann? Getur verið að startpúngurinn standi á sér?
Bíllinn er sjálfskiptur, svo þetta er bölvanlegt
Einhverjar hugmyndir? Hefur einhver hér lent í svipuðum vandamálum?
Ég er nýbúinn að vera að hrósa bílnum við vini og kunningja fyrir að vera viðhaldsfrír, svo ég vildi gjarnan redda þessu áður en þetta kemst upp

