bebecar wrote:Ég er í raun að tala um að ábyrgð fyrirtækja þurfi að vera sú sama og einstaklinga, siðferðislega og lagalega.
Þegar við sem einstaklingar gerum á okkur þá þurfum við að taka afleiðingunum og þýðir þá lítið að reyna að skipta um kennitölu, þetta á við um gjaldþrot, afbrot og hvaðeina...
Það er þetta element, að fyrirtæki, séu að miklu leiti stikkfrí frá siðferðislegum kröfum og frjálsari hvað lagalegar kröfur varðar en einstaklingar, sem gerir það að verkum að þau geta leyft sér að hegða sér eins og naut í flagi.
Þau fyrirtæki sem gera sér grein fyrir þessu eru einmitt þau fyrirtæki sem eru rekin af ábyrgð til lengri tíma litið. Þau eru gjarnan hornsteinn atvinnu og tekna í áraraðir. Ég man ekki alveg tölurnar en það eru til einhverjir útreikningar á því hver meðalaldur fyrirækja er og lang flest fyrirtæki sem ekki eru stofnuð með viðvarandi hægan og vel grundvallaðan vöxt í huga fara á hausinn innan fárra ára. Það er hægt að finna einhver gögn um þetta en ég hef þau ekki á reiðum höndum því miður....
Einstaklingar ættu að vera rétthæstir í samfélaginu, ekki fyrirtæki.
En svona með jöfnuna - þá vantar auðvitað líka peningaprentunina sem ég trúi að sé stærsta vandamálið (vaxtastefnan í USA hafði auðvitað áhrif á það).
Já, en er ekki lausnin fyrir framan okkur núna? Fyrirtækin sem höguðu sér óskynsamlega eru einmitt þau sem eru hvað verst stödd. Ég er almennt hlynntur því að markaðurinn drepi sjálfur þá sem hagi sér óskynsamlega og ósiðlega, í stað þess að þvinga fyrirtæki í einhvern farveg, því það skilar yfirleitt afskaplega litlu. Eins og sést þá tekst mönnum einhvernveginn alltaf að komast framhjá reglum.
Fastinn í þessu öllu er að það verður alltaf til fólk sem er tilbúið til þess að haga sér óskynsamlega og ósiðlega. Þess vegna vil ég að kerfið sjái sjálft um að illa fari fyrir slíku fólki, frekar en að of harðar reglur séu settar á öll fyrirtæki sem koma þá þeim fyrirtækjum illa sem eru að haga sér siðlega og skynsamlega.
Niðurstaðan mín er basicly fólk er fífl (svona til að tala bluntly) og því þarf að byggja kerfið á þeirri forsendu, ekki forsendu um að hægt sé að breyta fólki eða beygja að siðferðislegum forsendum.
En varðandi peningaprentun þá er það einmitt líka stór factor í vandamálinu og í allri þessari gjaldmiðlaumræðu okkar ættum við að muna að hvort sem um ræðið, dollara, evru, krónu, pund eða norska krónu þá er þetta allt saman pappírgjaldmiðlar með lítinn sem engan raunverulegan forða á bakvið sig og því alltaf mjög fallvaltur.