Við feðgarnir vorum að kaupa nýjar felgur úr kassanum. (þetta er ekki undir BMW)
Það verða sumardekk á þessum felgum.
Þetta er í sjötta skipti sem ég kaupi glænýjar felgur og hef aldrei pælt í því áður, en ég hef bara alltaf sett þær beint undir, án þess að gera neitt við felgurnar á undan.
Semsagt, ég er að pæla í því hvort menn hafa borið einhver efni á, eða/og bónað felgur áður en þeir taka þær í notkun og þá hvaða efni sérstaklega mæla menn með.
Eða á maður ekkert að pæla í því.


