Jæja, eftir mikil email skrif og stress og vesen er ACS spoilerinn loksinn kominn á klakann. Fékk hann í hendurnar í gær og er frekar hamingjusamur með kaupin
Eins og gefur að skila er ekkert rosalega auðvelt að verða sér útum svona hluti, og hvað þá á skynsamlega verðmiðanum. Því þarf eiginlega að stökkva á þann næsta sem maður finnur. Verð á notuðum svona spoiler er að rönna á 250-400 dollara. Löngu hætt að framleiða þetta og helst enginn vill skilja við svona dót
Verður feikigott þegar maður er búinn að nostra ögn við þetta fyrir málningu

Einhverstaðar rakst ég á þær upplýsingar að þetta væri úr kevlar, sel það ekki dýrara en ég keypti það. En allavega er þetta lauflétt. Vó 5kg í öllum umbúðunum og örugglega lítið meira en 3kg eftir að ég var búinn að losa mig við þær.