Jææææja, eftir slétta viku verður leikið um hinn margrómaða og gífurlega eftirsótta Superbowl titil í 44. skiptið en til úrslita leika
Arizona Cardinals og
Pittsburgh Steelers.
Cardinals eru nokkuð óvænt komnir í Superbowl eftir að hafa slegið út Philly Eagles í síðustu umferð, en sigursælasta (og
besta 
) lið NFL deildarinnar; Pittsburgh Steelers fór léttilega með Baltimore Ravens í hinum undanúrslitaleiknum þökk sé bestu vörn fyrri ára.
Pittsburgh Steelers
Arizona Cardinals
Flestir búast við Steelers sigri, en við skulum þó ekki gleyma að langflestir spáðu Patriots öruggum sigri í Superbowl leiknum í fyrra og þar komu NY Giants heldur betur á óvart. Það er þó klárt mál að Kurt Warner þarf að eiga svakalegasta leik allra tíma ef hann ætlar sér að stýra Cardinals til sigurs og ég einfaldlega neita að trúa að svo gerist; Woodley og Ward afgreiða þennan leik fyrir Steelers og þeir fagna sínum 6. Superbowl titli.
Steak'n'Play (á Grensásvegi) mun efla til Superbowl veislu og verður upphitun og leikur sýnt í beinni og ég hvet alla áhugamenn til að mæta. Eitthvað skilst mér að einhver tilboð á öli verða í boði og um að gera að láta sjá sig; Aðdáendahópur NFL er ekki það stór hérlendis, en engu að síður nógu stór til að skapa hörkustemningu saman yfir svona stórviðburði.
Og þið hinir vitleysingarnir sem vitið ekkert um hvað ég er að tala og mynduð ekki þekkja Bandarískan fótbolta þótt hann myndi lenda í andlitinu á ykkur, hérna eru nokkrar ljósmyndir af klappstýrum NFL deildarinnar svona til að gera lesturinn þess virði;
Áfram Steelers! 