KristoferK wrote:
gstuning wrote:
Stanky wrote:
Jónas wrote:
gstuning wrote:
trúa á hverja?
Er búið að stokka upp í öllum flokkum?
Eru komnast stefnuskrár sem eru myndaðar í ljósi aðstæðna?
Ekki er ætlast til að við kjósum sama fólkið aftur?
Það eru ekki allir óánægðir með núverandi stjórnvöld. 

+1
Hvernig er hægt að segja svona meira að segja.
Væri gott headline frá síðustu heimskreppu,
"Don´t worry it´s noboby´s fault, goverment is still A-OK"
Goverment get´s thumbs up from Times magazine.
Þetta er ekki svona svart og hvítt. Þetta er, eins og þú réttilega bendir á,
heimskreppa og Ísland er ekki eina þjóðin sem mun koma til með að standa í efnahagskreppu næstkomandi ár. Að skella allri skuldinni eins og hún leggur sig á Davíð Oddson og Sjálfstæðisflokkinn er ekki bara rangt heldur líka eitthvað sem einhverjir bitrir, sveittir kratar segja til að láta sjálfum sér líða betur.
Eins og hefur verið margbent á þá var þetta fyrst og fremst heimatilbúinn vandi.
Vegna mikils framboðs á ódýru fjármagni þá varð til hér mesta bóla í Íslandssögunni sem hefði sprungið fyrr en seinna alveg óháð heimskreppunni.
Í svona ástandi er það hlutverk ríkisins að reyna að tappa lofti úr bólunni til að hún springi ekki eins og varð raunin en þess í stað hefur ríkið gert öfugt við það sem það hefði átt að gera, það var gefið enn meira í.
Hagstjórn landsins hefur verið í molum en þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd í hátt í 2 áratugi samfellt þá er eðlilegt að menn telji hann bera mestu ábyrgð á þessari óábyrgu hagstjórn.
Það má jafnvel færa fyrir því rök að á vissan hátt séum við heppin að lenda í þessari heimskreppu þar sem að fallið hefði orðið enn hærra ef bólan hefði fengið að þenjast út áfram. Ef þenslan hefði haldið áfram í 1-2 ár, hvað hefði bankakerfið þá verið orðið stórt og hvað væru IceSave reikningarnir komnir upp í?
En bara svo það sé á hreinu þá er enginn að kenna neinum einum manni um kreppuna, það væri nú alveg út í hött. Þetta er auðvitað samspil margra þátta en það er ósköp eðlilegt að sá flokkur sem hefur farið með stjórn efnahagsmála síðustu 2 áratugi beri mesta ábyrgð.
Ég bendi mönnum nú á að í þenslunni þá voru Sjálfstæðismenn duglegir að þakka sjálfum sér fyrir frábæra hagstjórn, það heyrist ekki mikið í þeim þessa dagana...