JonHrafn wrote:
íbbi_ wrote:
ég verð samt að segja að ég er hálf hissa að menn séu ekki búnir að taka nýju bankana fyrir,
ég hef aldrei séð jafn siðlausar vinnuaðferðir og bankarnir og önnur lánafyrirtæki eru að hakka í sig "fyrrverandi leygjendur" bifreiða,
og ég get tekið sjálfan mig sem dæmi, ég skilaði hjólinu mínu inn, þegar að ég var búinn að missa síðustu vinnuna, og afborgunin kominn yfir 70þús,
2006 Harley davidsson Night rod, keyrt 4k, hlaðið aukahlutum, nývirði hátt í 4mills,
verðmetið s.k nýja glitnir á 600þús

Fólk er að koma hrikalega illa út úr þessum einhliða viðskiptum

ég er búinn að vera berjast í þessu núna,(og skammast mín ekkert fyrir það) og hef sjaldan séð önnur eins vinnubrögð.
hjólið fór í gjörsamlega raunveruleikafirrt mat, þar sem var sett út á m.a að hjólið væri ekki á þeirri dekkjategund sem það kæmi nýtt, og það væri ekki réttur prófíll, lítil rispa á gafli, og flr.
ég skilaði svo inn bíl sem ég átti á sama tíma, enda var ekki hægt að standa undir núverandi afborgun.. ég skilaði bílnum inn í byrjun veturs, og þeir eru búnir að vera í á þriðja mánuð með bílin, og hafa sent mér greiðsluseðla fyrir honum allan tíman, sem og rukkað mig um bifreiðagjöld fyrir 2009, en ég skilaði bílnum 2008, þegar ég benti þeim á það, þá sögðu þeir að þetta væri bara svona og ekkert hægt að gera

bara svona til að gefa mönnum meira bragð.. þá eru greiðsluseðlarnir eftir að ég skilaði bílnum, komnir yfir 300þús í dag
nákvæmlega svona á greinilega að ná peningunum aftur til baka, ég veit um fjöldan allan af dæmum þar sem menn eru að koma út með voðalega svipaðar upphæðir til baka, og þeir skulduuðu áður en þeir skiluðu inn bílnum,
svo er það nýjasta að bankarnir séu að neita að lána fólki fyrir því sem sat eftir,. vegna vanskila á gamla láninu.. sem var komið í bull
Hvernig er það, þegar þetta verðmat er komið, þá situr þú eftir með mismunin á því og skuldinni er það ekki? Er engin séns að fá tækifæri til að koma þessu í verð fyrir meira eftir að þetta verðmat er komið?
Nú er náttúrulega ljóst að bílamarkaður og flestir aðrir markaðir eru hrundir heima. Hvað fæst fyrir 4 milljón króna mótorhjól í dag t.d. EN 600 Þús
Maður hugsaði alltaf með sér að maður gæti gert mjög góð kaup þegar maður kæmi heim út af öllum þessum bílum sem yrði offramboð á á einhverjum tímapunkti. Manni datt náttúrulega aldrei í hug að svona tölur myndu fara að sjást.
Ég get samt ekki með góðri samvisku keypt bíl á svona dílum sem hefur verið hirtur af einhverjum meðalmanni sem álpaðist til að taka myntkörfulán. Samúðin er kannski ekki alveg jafn mikil gagnvart þeim sem hafa mjólkað okkur síðustu ár, lifað eins og kóngar og eru kannski sjálfir í klípu núna...