saemi wrote:
Ég lenti í sömu vandræðum einu sinni. Minnir að ég hafi endað á að far í umboðið ...
Já...ég lenti í þessu með "Hvíta hrafninn" / IT-629 þegar ég átti hann...
þá vantaði mig líka þessa sömu bremsudælu.
Hún var pöntuð fyrir mig í AB-varahlutum, kostaði þá hingað komin í kringum 5.000 kr.
Núna datt mér í hug að kanna TB...og viti menn, þeir áttu 1 stk til.
Kostaði 2.267 kr með kraftsafslættinum
Verðið hjá B&L ef ég læt panta hana er 21.000 kr.
Svo ég ætla leyfa mér að efast um að ég muni nokkurn tímann kaupa þessa dælu þar
Ég get látið panta hana í TB/AB....þá erum við að tala um 2 vikur lágmark í bið.
Sama ef ég panta af eBay....
....ég nenni bara ekki að tefja þetta verkefni um 2 vikur svo ég ætla tékka hvort þetta leynist ekki hér.