bimmer wrote:Úff... það er ljóst eftir að hafa hlustað á Geir í Íslandi í dag að þessi
mótmæli hafa ekkert náð til hans - hann fattar ekki enn stöðuna.
Hann gerir sér alveg grein fyrir stöðunni!
Hinsvegar er það þannig að þessi 6.600 manns sem vilja að kosið er ásamt þeim max 5.000 sem eru að mótmæla TALA EKKI FYRIR ÞJÓÐINA!
Geir er gríðarlega sterkur leiðtogi og það skín alveg gjörsamlega í gegn þessa daga hvað hann er sterk persóna.
Ekki margir sem myndu þola svona álag án þess að falla saman!
Af 320.00 manna þjóð eru ~2% sem vilja kosningar!
Hvernig getur þetta fólk talað fyrir hönd þjóðarinnar?
edit: Ekki taka því samt þannig að ég sé sáttur við ástandið í dag. Ýmsir ráðherrar þurfa að segja af sér, m.a. fjármálaráðherra fyrir afglöp í starfi ásamt viðskiptaráðherra. Taka þarf til í FME og Seðlabankanum!

